Fréttir

Sendi 10 ára stúlku kynferðisleg skilaboð og bað um myndir af kynfærum hennar

Mynd

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni gegn 10 ára gamalli stúlku, en brotin áttu sér stað á samskiptaforritinu Snapchat.

Maðurinn er sakaður um að hafa viðhaft kynferðislegt tal við stúlkuna á Snapchat og ítrekað sent henni kynferðislegar myndir og myndbönd. Eins mun hann hafa beðið stúlkuna um myndir og myndbönd af líkama hennar og kynfærum. Meint brot áttu sér stað á tímabilinu frá og með 5. mars 2023 til og með 8. mars 2023. 

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er farið fram á upptöku á farsíma mannsins. Stúlkan fer fram á 2,5 milljónir í miskabætur.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær en þinghald er lokað.

Töluvert hefur borið á málum þar sem Snapchat er nýtt til að brjóta kynferðislega gegn börnum. Til dæmis má nefna að íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri var í febrúar dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 8 stúlkum á samskiptaforritinu og frægt varð mál fyrrverandi rannsóknarlögreglumannsins Harðar Sigurjónssonar sem hefur hlotið dóma fyrir látlausa áreitni gegn börnum og unglingum á miðlinum. Héraðssaksóknari ákærði annan mann í sumar sem meðal annars er sakaður um að hafa notað Snapchat til að mæla sér mót við 12 ára gamla stúlku í því skyni að áreita hana kynferðislega. Á síðasta ári var maður ákærður fyrir nettælingu og kynferðislega áreitni gegn börnum eftir hömlulausa framkomu við sex barnungar stúlkur á Snapchat. Hér er ekki um tæmandi talningu að ræða en það virðist orðið nokkuð algengt að barnaníðingar nýti Snapchat til að komast í kynni við börn.

Sjá einnig: Enn einn Snapchat-perrinn – Mælti sér mót við 12 ára barn