Fréttir

Rögnvaldur fékk nýtt hjarta: „Ég þurfti að horfast í augu við að ég var að deyja“

Mynd
Rögnvaldur Ólafsson. Mynd/Almannavarnir

„Ég er búinn að vita af hjartveiki sem ég hef verið með síðustu tólf ár. Svo fyrir tæpu ári síðan fékk ég nýtt hjarta,“ segir Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í einlægu viðtali í þættinum Segðu mér á Rás 1. Þar fer hann meðal annars yfir tilfinningarússíbanann sem fylgdi því að fá nýtt hjarta og þannig nýtt líf. 

Var að bíða eftir að einhver myndi deyja

Rögnvaldur veit ekki hvaðan hjartað hans kemur. „Það er skrítin tilfinning að vita að þú ert kominn á þann stað með hjartveiki að það sé ekkert annað hægt að gera í stöðunni en að fá nýtt hjarta og þá fer maður í gegnum alls konar rannsóknir til að sjá hvort líkaminn þoli að fá fá nýtt hjarta. Það er mikil spenna og alls konar tilfinningar sem fylgja því, hvort maður komist í gegnum síuna og þegar maður kemst á listann; maður var að bíða eftir að einhver deyi,“ segir hann. 

„Það er svolítill rússíbani. Það er spenna, von um að þú getir haldið áfram að lifa lífinu. Eins og mín hjartveiki var að þróast þá var ég að deyja hægt og rólega. Allt var að verða erfiðara og erfiðara. Ég var kominn niður í 10-12 prósent dælugetu undir það síðasta, sem er orðið frekar dapurt. Svo líka þetta, að vera í þessum bransa sem ég er í, að hjálpa fólki og vera allt í einu kominn á þann stað að bíða eftir að einhver deyi svo ég geti fengið nýtt líf. Það er eiginlega ekki hægt með góðu móti að lýsa þessum tilfinningum sem fylgja þessu. Þetta er svona upp og niður rússíbani.“

„Ef ég færi á morgun, það væri allt í lagi“

Rögnvaldur segir að hann hafi verið búinn að undirbúa sig fyrir dauðann. 

„Það er rosa sterkt innbyggt í okkur að vilja lifa og það var það sem ég var fyrst að hugsa um, hugsa um börnin mín og svona, og líka, ég þurfti að horfast í augu við að ég var að deyja. Að taka stöðuna á lífinu, ég var bara sáttur. Ég var búinn að gera ótrúlega skemmtilega hluti, upplifað margt, pínulítið eins og Forrest Gump það sem ég hef verið viðstaddur. Ef ég færi á morgun, það væri allt í lagi. Það væri ekki það skemmtilegasta og ég vildi halda áfram en ef ég dey þá er það bara allt í lagi.“

Hann var búinn að taka praktísk samtöl við eiginkonu sína varðandi jarðarför, fjármál og hvernig hún kæmist inn á símann hans. „Svo þegar komið er að því, þá er mér alveg sama, gerið það sem þið viljið. Hafið bara gaman, þetta á ekki að vera leiðinlegt.“

Þegar hann fékk nýja hjartað var hann spurður hvort það mætti nota hluta af gamla hjartanu hans í aðra ígræðslu. „Það var svo sjálfsagt, takið það bara,“ segir hann. 

Var í starfsnámi þegar snjóflóðið fékk á Súðavík

Í viðtalinu fer Rögnvaldur einnig yfir ferilinn en hann var í starfsnámi á Vestfjörðum þegar snjóflóð féll á Súðavík í janúar 1995, 14 létust. „Það hefur stundum verið talað um að þetta hafi verið svæsnasta starfsnám sem lögreglan hefur boðið upp á. Þetta mótaði menn gríðarlega mikið þó ég upplifði það ekki sjálfur. Mér fannst ég vera sami Rögnvaldur og ég var áður,“ segir hann. Hann var það ekki. 

„Fólk sem þekkir mig hefur sagt mér að ég hafi fullorðnast einn tveir og tíu. Sagt að ég væri alvarlegri, aðeins minni galgopi og grínari, þetta hefur jarðtengt mann meira. Svo varð ég pabbi líka á sama tíma. Elsta dóttir mín er nýfædd, fæddist í desember '94 og er bara mánaðargömul þegar þetta gerist. Þegar ég kom heim, ég var nokkra sólarhringa í Súðavík, kem heim um miðja nótt, allir sofandi og sé litlu stelpuna mína steinsofandi. Fékk svona flassbakk eftir að hafa sitt erfiðum störfum þarna í Súðavík, sjá litlu hendina hennar liggja útundan sænginni, hafandi þurft að horfa á aðra litla hendi í öðrum aðstæðum… Þetta var svona, kýldur í magann.“

Hér má hlusta á viðtalið í heild