Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af þvi að vera í EES og einhver verður að klára það líkt og einhver verður að taka úr uppþvottavélinni.
„Ef fólk heldur að frumvarpið um Bókun 35 sé einhvert sérstakt „ástríðumál“ Evrópusinna af því að það sé leið til að „troða okkur bakdyrameginn inn í ESB“, þá á það allavega ekki við um mig,“ segir Pawel í færslu á samfélagsmiðlum. „Ég er álíka spenntur fyrir Bókun 35 og ég er fyrir því að taka upp úr uppþvottavélinni. Ég veit að einhver þarf að gera það. Ég er ánægður þegar ég klára það. En ég væri samt fegnastur ef einhver annar væri búinn að því.“
Um sé að ræða frumvarp sem Sigríður Andersen, nú þingmaður Miðflokksins, skrifaði fyrir fyrri ríkisstjórn, það er Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Sú stjórn hafi hins vegar átt erfitt með að klára mál og því hafi það komið í hlut annarra að gera það.
Erum bakdyramegin í ESB
„Hvað varðar það að það sé verið að troða okkur bakdyramegin inn í ESB, þá þarf þess ekki, því við erum þar þegar,“ segir Pawel. „EES-samningurinn er nákvæmlega það. Hann gengur út á það að íslenskir borgarar og íslensk fyrirtæki fá að vera í ESB meðan íslensk stjórnvöld standa fyrir utan.“
Þetta sé ekki frábært kerfi og rökréttast væri einfaldlega að vera í Evrópusambandinu. Þá hefðum við eitthvað að segja um þau lög sem ESB setur en nú tökum við þau upp án þess að fá nokkuð um það að segja.
„Það er síðan búið að setja í kringum þetta óskaplega flókið kerfi til að fólk geti sannfært sjálft sig um að við höfum alls ekki framselt neitt ríkisvald,“ segir Pawel. „Bókun 35 er partur af þessu kerfi. Með henni geta Íslendingar og íslensk fyrirtæki treyst því að EES-rétturinn gildi með því að gefa honum forgang ef hann rekst á önnur lög. Af hverju? Því við lofuðum að gera nákvæmlega það þegar við skrifuðum undir EES-samninginn.“
Hópeflismál Miðflokksins
Pawel segir að Miðflokkurinn líti á Bókun 35 sem hópeflismál. Það gefi honum tækifæri til þess að koma til baka eftir að hafa verið lítt sýnilegur í ESB atkvæðagreiðslunni. Sjálfstæðisflokkurinn hafi átti sviðið þá.
„Sjálfstæðisflokknum finnst þetta óþægilegt mál því hann veit ekki hvað honum finnst um það lengur. Vita líklega að þetta þurfi, en vilja ekki tapa harða neiinu aftur til Miðflokksins,“ segir Pawel að lokum. „Ég get samt ekki sagt að mér finnist það reisnarfull afstaða að þvælast fyrir máli sem maður sjálfur lagði fram en tókst ekki að koma í gegn. Svona kannski einmitt eins og að standa yfir einhverjum sem er að taka upp úr uppþvottavélinni og skamma hann fyrir allt og ekkert. Skamma hann bæði fyrir að hafa ekki gert þetta fyrr og leiðast til að segja honum að þetta sé í raun óþarfi. Því hvað er nú það versta sem gæti gerst þótt morgunkornið storkni enn frekar við mjólkurskálina?“