Fréttir

Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu

Mynd
Ramirez var líklegast hrint fram af svölum á fimmtándu hæð með átta mánaða barn sitt í örmunum.

Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni grunar að konunni hafi verið hrint.

Sjónvarpsstöðin ABC greinir frá þessu.

Um klukkan 3:30 á aðfaranótt þriðjudags, þann 6. október, fannst hin 23 ára Nathaly Ramirez stórslösuð ásamt 8 mánaða barni sínu fyrir neðan heimili sitt í Bronx hverfinu í New York borg. Ramirez og barnið höfðu fallið ofan af svölum íbúðarinnar á fimmtándu hæð.

Farið var með Ramirez og barn hennar á sjúkrahús en þar var móðirin úrskurðuð látin. Smábarnið er alvarlega slasað og í lífshættu.

Rannsókn á vettvangi leiðir í ljós að Ramirez hafi notað móðureðli sitt til þess að bjarga barninu. Það er að hún hafi haldið fast utan um barnið í fallinu og notað líkama sinn til þess að dempa höggið fyrir það. Þetta hafi að öllum líkindum bjargað lífi barnsins. Þegar Ramirez fannst hélt hún ennþá utan um barnið.

Rannsókn stendur yfir á hvað hafi gerst og talið er að þetta hafi ekki verið slys. Ramirez og barni hennar hafi verið hrint fram af svölunum.

Heyrðu skarkala og óp

Nokkur vitni voru á staðnum, bæði fyrir utan bygginguna og inni í henni. Ein kona sagðist hafa heyrt óp frá konu áður en hún sá hana falla til jarðar. Hún hafi hrópað: „Gerðu það, ekki gera þetta!“

Nágranni heyrði hamagang úr íbúðinni. Karlmaður hafi verið að reyna að komast inn.

„Hann var að sparka í hurðina og reyna að komast inn í íbúðina,“ sagði nágranninn.

Ramirez var ekki búin að búa lengi í húsinu. Nágrannar hennar sögðu hana hafa verið vingjarnlega og hlýja. Hún starfaði sem fjármálaráðgjafi hjá fyrirtækinu Lishawn´s Consulting.

„Nathaly Ramirez var gimsteinn að vinna með,“ sagði Lishawn Alexander, forstjóri fyrirtækisins. Allur vinnustaðurinn syrgi hana gríðarlega. „Hún var einstaklega geislandi manneskja. Hún var mjög vinnusöm og sýndi þrautseigju og hollustu við að ná starfstengdum markmiðum sínum.“

Lífsglöð nýbökuð móðir

Vinir hennar segja líka að hún hafi verið mjög lífsglöð og ánægð með að verða orðin móðir.

„Hún var mjög lífsglöð, rétt eins og hún var mjög glöð með að vera mamma. Hún er nýbökuð mamma og barnið var mjög glatt,“ sagði vinkona hennar.

Lögreglurannsókn er enn þá yfirstandandi og enginn hefur verið handtekinn. Lögreglu grunar hins vegar að morðinginn búi í húsinu og hafi verið kærasti eða fyrrverandi kærasti Ramirez. Öryggismyndavélar sýna mann ganga frá byggingunni þegar sjúkrabílarnir koma.