Fréttir

Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa

Mynd
Ólafsfjörður. Mynd: Steinninn/Wikipedia

Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna í ágúst 2022. Húsið var auglýst mikið endurnýjað og bæði þak og frárennslislagnir sögð endurnýjuð. Raunin reyndist önnur og var viðgerðarkostnaður vegna þaks, rakaskemmda og myglu metinn á nær helming kaupverðsins.

Húsið er tæpir 191 fermetri, á tveimur hæðum og byggt árið 1950. Fljótlega eftir afhendingu þess komu í ljós vandamál við frárennsli þegar konurnar létu undirbúa gerð sólpalls. Í janúar 2023 varð síðan vart við leka frá þaki. Þær tilkynntu seljandanum og fasteignasölunni um lekann en ekki náðist samkomulag um lausn málsins.

Dómkvaddur matsmaður komst að þeirri niðurstöðu að ástand þaksins væri langt frá því að samræmast lýsingu á endurnýjuðu þaki. Burðarvirkið væri upprunalegt, fúi og lekamerki útbreidd og loftræsting ófullnægjandi. Sumir fleygar undir þakstólum voru horfnir og aðrir „grautfúnir“. Þá greindist mygla í sýnum úr húsinu. Nauðsynlegar úrbætur jafngiltu í raun nýju þaki.

Seljandinn upplýsti ekki

Riftunin byggðist á því að seljandinn hafði veitt rangar og ófullnægjandi upplýsingar og gallarnir voru svo umfangsmiklir að þeir töldust veruleg vanefnd. Kostnaður við endurnýjun þaks og lagfæringar á afleiddum skemmdum og myglu var metinn á tæpar 15,9 milljónir króna, tæplega helmingur kaupverðsins, sé ekki tekið tillit til endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Seljandinn hélt meðal annars fram að kaupendunum hefði mátt vera ljóst við skoðun að þakið væri í bágu ástandi. Dómurinn taldi hins vegar að hann hefði vitað eða mátt vita um ástand þess enda hefði hann átt húsið í rúm fimm ár, ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og unnið að lagfæringum eftir fyrri leka. Upplýsingaskylda hans gengi framar skoðunarskyldu kaupendanna. Þrátt fyrir aldur hússins hefðu þær mátt treysta því að þakið væri að minnsta kosti viðunandi.

Fyrir Landsrétti byggði seljandinn einnig á því að fasteignasali hefði sett upplýsingar um endurnýjað þak í söluyfirlitið án vitneskju hans. Rétturinn tók fram að seljandinn bæri ábyrgð á þeim upplýsingum gagnvart kaupendunum.

Þarf að endurgreiða og taka við húsinu aftur

Seljandanum var gert að endurgreiða konunum 29,16 milljónir króna gegn afhendingu hússins, auk dráttarvaxta. Frá kaupverðinu voru dregnar 3,84 milljónir vegna afnota þeirra af eigninni. Hann þarf jafnframt að greiða þeim rúmlega 1,09 milljónir króna í skaðabætur, meðal annars vegna lagfæringa á frárennsli og bráðabirgðaviðgerða á þaki, auk samtals fimm milljóna króna í málskostnað á báðum dómstigum.

Dóminn má lesa hér.