Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna, og telur heiminn þurfa fleiri menn eins og hann. Þetta kemur fram í grein sem Einar ritaði í tilefni þess að um helgina eru liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem Gorbatsjov og þáverandi forseti Bandaríkjanna, Ronald Reagan, ákváðu að funda á Íslandi með mjög skömmum fyrirvara. Einar rekur að þó að fundurinn hafi ekki skilað þeim samningum sem vonast var eftir hafi árin leitt í ljós hversu mikilvægur hann var. Tuttugu árum síðar, árið 2006, taldist fundurinn mikilvægur áfangi að lokum kalda stríðsins.
„Það eru líka tuttugu ár síðan ég fékk tækifæri til að kynnast Gorbatsjov persónulega,“ skrifar Einar en árið 2006 kom vinur hans að tali við hann og vildi kanna hvort það væri einhver leið að fá Gorbatsjov aftur til Íslands í tilefni 20 ára afmælis leiðtogafundarins. Þetta fannst Einari spennandi hugmynd.
„Það gekk auðvitað ýmislegt á þessa daga. Mér er það afar minnistætt þegar einkavél Björgólfs Thors Björgólfssonar lenti með Gorbatsjov á Reykjavíkurflugvelli. Hann hafði boðist til að fljúga honum hingað og áfram til New York þangað sem leið Gorbatsjov lá til ávarpa þing Sameinuðu þjóðanna. Björgólfur var þá einn aðaleiganda Landsbankans sem aðstoðaði mig við að koma heimsókninni á. Skyndilega fylltist anddyri flugstöðvarinnar af fulltrúum rússnesku leyniþjónustunnar sem þá var ekki burðugri en svo eða hættulegri í mínum huga að ég bað öryggisverðina mína að henda þeim út. Eitthvað sem maður myndi kannski ekki gera í dag. En það er önnur saga. Heimsóknin varð að veruleika og ég hef sagt frá ýmsu af þessu í lengra í bókinni Öll trixin í bókinni.“
Maðurinn á bak við leiðtogann
Þegar Einar rifjar upp þessa heimsókn er það þó maðurinn sjálfur, Gorbatsjov, sem stendur upp úr. Einar hafði sínar hugmyndir um manninn sem hafði verið leiðtogi annars tveggja stórvelda heimsins og spilað hlutverk í atburðum sem breyttu gangi heimssögunnar.
„Það sem kom mér mest á óvart var hversu hlýr og mannlegur hann var. Hann hafði húmor, var forvitinn um fólkið í kringum sig og virtist hafa einlæga ánægju af samskiptum við aðra. Það var lítið af þeirri fjarlægð eða tilgerð sem maður hefði kannski búist við frá manni sem hafði setið á einum valdamesta stól heimsins.“
Á meðan á heimsókninni stóð fékk Einar að heyra um samskipti Gorbatsjovs og Regans, fundinn í Höfða og atburðina sem fylgdu í kjölfarið. Gorbatsjov talaði af hlýju um Ísland og Íslendinga.
„Mér fannst stundum hálfótrúlegt að sitja þarna og hlusta á mann segja frá atburðum sem ég hafði sjálfur fylgst með í fréttum. Það var líka áhugavert að sjá hina hliðina á honum. Hliðina sem hafði misst eiginkonu sína, upplifað allar þessar ótrúlegu breytingar og haft öll þessi gríðarlegu völd.“
Maðurinn sem hringdi í óvin sinn
Einar segir að þegar Gorbatsjovs tók við völdum hafi kalda stríðið staðið í áratugi og gríðarlegum fjármunum hafi verið varið til vopnakaupa á meðan milljarðar manna bjuggu við ótta um kjarnorkustyrjöld. Þessu ákvað Gorbatsjov að breyta. Hann ákvað að hringja í óvin sinn, þrátt fyrir að það gæti kostað hann völdin.
Á þeim tuttugu árum sem liðin eru síðan Einar hitti Gorbatsjov hefur margt breyst og ekki allt til batnaðar. Aftur eru stórveldi farin að auka vígbúnað, tala í hótunum og beita hernaðarmætti til að ná sínu fram. Tortryggnin milli austurs og vesturs er aftur orðin fyrirferðamikil í alþjóðastjórnmálum. Enginn virðist tilbúinn að taka upp símann eins og Gorbatsjov forðum.
„Það þarf ákveðið hugrekki til að setjast niður með þeim sem manni hefur alla tíð verið kennt að líta á sem óvin. Ég hef enga sérstaka trú á því að heimurinn verði nokkurn tíma laus við átök eða að stjórnmálamenn fari almennt að setja eigin metnað til hliðar fyrir stærri hagsmuni. En sagan hefur þó sýnt okkur að það er hægt. Höfðafundurinn árið 1986 er ágætis áminning um það.
Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov. Ekki bara vegna þess hver hann var eða hvaða hlutverki hann hafði gegnt í heimssögunni, heldur vegna þess hvernig maður hann reyndist vera þegar við hittumst.
Ég fékk að deila með honum nokkrum klukkustundum af ævi hans. Klukkustundum sem enn lifa með mér, tuttugu árum síðar.
Heimurinn þarf fleiri sem treysta sér til að hringja í óvin sinn.“