Fréttir

Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi

Mynd
Lögreglumenn leiða Margréti frá Héraðsdómi Reykjaness árið 2025. Mynd: Skjáskot RÚV.

Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðfestir 16 ára fangelsisdóm yfir Margréti fyrir að hafa orðið föður sínum að bana og beitt báða foreldra sína langvarandi og alvarlegu heimilisofbeldi. 

Landsréttur taldi sannað að Margrét hefði veitt föður sínum þá áverka sem leiddu til dauða hans. Dómkvaddir sérfræðingar voru sammála um að samverkandi þættir hefðu valdið dauða föðurins, Hans Rolands Löf tannsmiðs, einkum mörg rifbeinsbrot aftan á brjóstkassa, mikill sársauki, skert öndun, blóðmissir og mikið líkamlegt og andleg álag. 

Landsréttur taldi einnig að Margrét hefði hlotið að gera sér grein fyrir því að ofsakennd árás hennar á aldraðan og veikburða föður hennar gæti leitt hann til dauða. Hún hafi haldið árásinni áfram þrátt fyrir ástand hans og sýnt mikið skeytingarleysi gagnvart lífi hans. Er því staðfestur dómur yfir henni um manndráp. Var Landsréttur sammála héraðsdómi um að hæfileg refsing væri 16 ára fangelsi. 

Bróðirinn hefði þurft að áfrýja frávísuninni

Hálfbróðir Margrétar gerði kröfu um að hún yrði svipt arfi eftir föður sinn vegna morðsins á honum. Þeirri kröfu var vísað frá héraðsdómi. Landsréttur taldi sig ekki geta tekið efnislega afstöðu til kröfunnar þar sem einkaréttarkröfuhafinn, hálfbróðir Margrétar,  hafði ekki kært frávísun héraðsdóms á kröfunni sérstaklega til Landsréttar. Það hefði þurft að gerast til að Landsréttur tæki efnislega afstöðu til kröfunnar. Í dómi Landsréttar segir orðrétt um þetta: 

„Með hinum áfrýjaða dómi var vísað frá héraðsdómi kröfu einkaréttarkröfuhafans C um að ákærða hefði fyrirgert sjálfri sér til handa rétti til arfs eftir látinn föður þeirra A. Til að koma fram endurskoðun á þeirri niðurstöðu héraðsdóms hefði einkaréttarkröfuhafinn þurft að kæra til Landsréttar ákvæði hans um frávísun eftir reglum XXX. kafla laga nr. 88/2008. Með því að þessa hefur ekki verið gætt verðurdómkröfu einkaréttarkröfuhafans um þetta efni ekki komið að fyrir Landsrétti.“

Dóminn má lesa hér.