Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var sakaður um meiri brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda í rekstri einkahlutafélaganna Steik ehf. og Gourmet ehf. Félögin eru bæði gjaldþrota.
Steik var stofnað árið 2017 og tekið til gjaldþrotaskipta árið 2023. Félagið rak veitingastaðinn Reykjavík Meat sem nú er ekki lengur starfandi. Stefán er sakaður um að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda fyrir tímabilið frá því í desember 2020 og fram í ágústmánuð árið 2022. Nema vanskilin samtals rúmlega 32,7 milljónum króna.
Stefán er einnig ákærður fyrir sams konar skattsvik í rekstri félagsins Gourmet ehf, sem rak veitingastaðinn Sjáland í Garðabæ, fyrir árin 2021 til 2023. Nema meint vanskil staðgreiðslu opinberra gjalda ríflega 68,3 milljónum króna og skattsvikin í heild nema um 100 milljónum króna.
Stefán rak einnig hlutafélagið Brunch ehf sem fór í þrot haustið 2023. Félagið rak Mathús Garðabæjar.
Játaði en vildi vægustu refsingu út af COVID
Stefán játaði fyrir héraðsdómi sök í málinu en krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Vísaði hann til þess að rekstur félaganna hafi gengið vel þar til í COVID-faraldrinum. Því ætti að meta utanaðkomandi aðstæður honum til málsbóta. Félagin hafi verið í veitingarekstri og slík starfsemi ýmist bönnuð eða mjög takmörkuð á ákærutímabili á grundvelli fyrirmæla yfirvalda. Stefán hafi notað eigin fjármuni til að koma báðum veitingastöðum á koppinn sem hann sá fyrir að tapa ef hann missti leigusamninga.
Eftir á að hyggja hafi rekstrargrundvöllur beggja félaga verið brostinn í mars árið 2020 en Stefán var með skuldbindingar gagnvart skattinum og starfsmönnum sem hann ætlaði sér að standa við. Þeir litlu fjármunir sem hann hafði fóru í að greiða leigu og laun starfsmanna í von um að rekstraraðstæður myndu batna. Faraldurinn dróst þó á langinn og stuðningur stjórnvalda var undir væntingum. Viðspyrnan eftir faraldurinn varð svo hægari en væntingar stóðu til. Stefán reyndi að selja félögin til að gera upp skuldir en það gekk ekki eftir en hann taldi þó að þær tilraunir ættu að vera metnar honum til málsbóta.
Fjárskortur leiði ekki til refsimildunar
Dómari tók undir aðstæður hefðu verið fordæmalausar vegna faraldursins. Hins vegar varði ákæra vegna beggja félaga einnig tímabil eftir faraldurinn. Stefán hafi greitt starfsmönnum laun en ekki skilað inn staðgreiðslu þeirra. Félögin fóru í þrot vegna skulda við lífeyrissjóði.
Ekki taldi dómari rétt að miða við vægustu refsingu. Stefán hafi borið skylda til að tryggja að afdreginni staðgreiðslu launa væri skilað í samræmi við lög. Erfiðleikar í rekstri og erfið samskipti við leigusala breyti engu um þá skyldu. Honum hafi verið rétt og skylt að gefa bú félaganna upp til gjaldþrotaskipta hafi honum verið ljóst að félögin væru ógjaldfær. Ætla megi svo að styrkir stjórnvalda hafi mildað áhrif faraldursins, en Stefán hafi þó engin gögn lögð fram um fjárhæð styrkjanna eða nánari upplýsingar um afkomu félaganna á ákærutímabilinu. Fjárskortur leiði ekki til refsimildunar.
Það væri þó til refsimildunar að hann játaði sök, en á sama tíma horfði það til refsiþyngingar að um verulegar fjárhæðir væri að ræða yfir langt tímabil. Brot Stefáns væru stórfelld.
Hæfileg refsing væri því 15 mánuðir skilorðsbundið til tveggja ára. Eins beri honum að greiða sekt í ríkissjóð sem nemi tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem hann var ákærður fyrir að standa ekki skil á - 200.700.000 kr. en komi 360 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms.
Krafðist frávísunar
Fyrir Landsrétti krafðist Stefán frávísunar málsins, byggt á því að málið hefði ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti af hálfu héraðssaksóknara. Landsréttur hafnaði þeirri kröfu.
Þá taldi Landréttur að þótt fallast mætti á það með Stefáni að afar sérstakar aðstæður hafi verið uppi í heimsfaraldrinum, sem hafi bitnað illa á rekstri veitingahúsa, veislusala og veisluþjónustu, væru vanskil hans stórfelld og stóðu yfir í svo langan tíma að ekki væri unnt að fallast á að málsbætur hans hafi verið slíkar að uppfyllt væri skilyrði til þess að færa fésektina úr lágmarki 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda umfram það sem gert var í hinum áfrýjaða dómi. Með sömu rökum væru ekki efni til þess að skilorðsbinda fésektina. Var hinn
áfrýjaði dómur því staðfestur.
Dóminn má lesa hér.