Fréttir

Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður

Mynd
Mynd: Skjáskot/Já.is.

Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar byggingarfulltrúa um að leyfi til breytinga í kjallara og á 1. hæð hússins. Eru umræddar framkvæmdir tilkomnar vegna þess að til stendur að opna þar veitingahús í stað kaffihússins Café Rosenberg, en þrátt fyrir að á kaffihúsinu hafi verið töluvert um tónleikahald segja eigendurnir að með tilkomu veitingahússins muni ónæði og önnur óþægindi aukast.

Eigendurnir kröfðust þess að byggingarleyfið yrði fellt úr gildi og að framkvæmdir yrðu stöðvaðar á meðan kæran er til meðferðar. Hefur nefndin nú sent frá sér úrskurð vegna síðarnefndu kröfunnar.

Eigendur Café Rosenberg greindu frá því nýlega í samtali við Mbl.is  að kaffhúsið yrði flutt frá Vesturgötu, þar sem það hafði verið frá 2019, þar sem húsnæðið hefði verið selt og þar yrði opnaður veitingastaður. Verður kaffihúsið opnað í húsnæði á horni Tryggvagötu og Naustarinnar.

Í maí var sótt um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi fyrstu hæðar og kjallara hússins, en íbúðirnar eru á annarri og þriðju hæð, til þess að opna þar veitingastað fyrir 155 gesti en kaffihúsið var fyrir 159 gesti.

Nei

Um viku eftir að umsóknin var lögð fram var haldinn húsfundur þar sem tekin var fyrir tillaga um að hin fyrirhugaða starfsemi fæli í sér breytingu á hagnýtingu séreignar sem hefði í för með sér verulega meira ónæði, röskun og óþægindi fyrir aðra eigendur, umfram það sem áður hefði verið og búast hefði mátt við. Lagði forvarsmaður fyrirtækisins sem stendur fyrir rekstrinum og á 1. hæðina og kjallarann fram mótmæli við tillögunni. Var tillagan samþykkt með atkvæðum eigenda íbúðanna gegn atkvæði forsvarsmanns fyrirtækisins.

Í júní sendiu eigendur íbúðanna byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur athugasemdir við byggingar- og starfsleyfisumsóknir vegna fyrirhugaðrar starfsemi veitingastaðarins. Töldu eigendurnir að skilyrði laga fyrir því að samþykkja þessar unmsóknir væru ekki uppfyllt og gerðu kröfu um að þeim yrði hafnað. Voru í kjölfarið gerðar breytingar á umsókninni þannig að hún tæki eingöngu til framkvæmda innanhúss. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa í ágúst var umsóknin samþykkt, en samkvæmt samþykktum aðaluppdráttum var um að ræða breytingar á innra skipulagi í kjallara og á fyrstu hæð og engin breyting gerð á útliti hússins.

Utanhúss

Í september upplýstu eigendurnir byggingarfulltrúa um að framkvæmdir væru hafnar við útsogsrör utanhúss. Sögðu þeir um óleyfisframkvæmdir að ræða og kröfðust þess að byggingarfulltrúi gripi inn í. Í kjölfar frekari samskipta upplýsti byggingarfulltrúi að ekki væri verið að gera útlitslegar breytingar á húsinu heldur fælu framkvæmdirnar eingöngu í sér endurnýjun stokks á útsogsröri í samræmi við athugasemdir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Lögðu eigendurnir í kjölfarið fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna framkvæmdanna og eins áður segir kröfðust þeir þess að framkvæmdir yrðu stöðvaðar á meðan kæran væri til meðferðar.

Kom fram í kærunni að þar sem framkvæmdir væru þegar hafnar á ytra byrði og sameiginlegu lagnakerfi hússins, án samþykkis húsfélagsins, og í trássi við orðalag samþykktra hönnunargagna væri brýnt að framkvæmdir yrðu stöðvaðar til að koma í veg fyrir frekara óafturkræft tjón á sameign og verndargildi hússins. Þá myndu eigendur íbúðanna verða fyrir tjóni af opnun fyrirhugaðs veitingastaðar ef framkvæmdum lyki.

Reykjavíkurborg krafðist þess að kröfunni um stöðvun framkvæmda yrði hafnað og vísaði til þess að þær væru afturkræfar.

Lokið

Forsvarsmaður fyrirtækisins sem stendur fyrir framkvæmdunum og opnun veitingastaðarins andmælti kröfunni um stöðvun framkvæmda og benti á að þeim væri lokið.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tekur undir þetta og segir að öllum framkvæmdum á grundvelli hins kærða byggingarleyfis sé lokið. Með hliðsjón af því verði að líta svo á að ekki sé til dreifa þeim lögbundnu skilyrðum fyrir stöðvun framkvæmda að þær séu annað hvort hafnar eða yfirvofandi. 

Kröfu eigenda íbúðanna um að stöðva framkvæmdir, vegna umbreytingar 1. hæðarinnar og kjallarans úr kaffihúsi í veitingastað, á meðan kæra þeirra er til meðferðar, er því hafnað.