Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingum hans en einnig almennum borgurum í ríkinu. Hefur forsetinn verið sakaður um að gefa Íran skotleyfi á tvær borgir í ríki þar sem demókratar ráða ríkjum, sem forsetanum gremjist en hann og ríkisstjóri Kaliforníu hafa löngum eldað grátt silfur. Hafa ummælin verið sögð fela í sér landráð af hálfu forsetans. Aðstoðarfólk hans segir hins vegar viðbrögðin vera úr öllu hófi fram og hreinlega bjánaleg, forsetinn hefði augljóslega verið að segja hvað hefði gerst ef hann hefði ekki fyrirskipað árásir á Íran.
Hin umdeildu ummæli lét Trump falla á fjöldafundi með stuðningsmönnum sínum í Nebraska á mánudag. Sagði hann þar að hækkanir á olíuverði vegna stríðrekstursins í Íran og lokunar Hormússunds ekki of hátt verð til að greiða fyrir öruggari heim. Hann sagði síðan um Íran:
„Þeir geta lagt borg í rúst (e. take out). Leyfum þeim að leggja Los Angeles í rúst. Leyfum þeim að leggja San Diego í rúst.“
Við þessi orð klöppuðu áhorfendur.
Landráð
Borgarstjórar borganna tveggja brugðust hart við og það sama gerði Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu en þeir Trump hafa deilt hart og notað iðulega ófögur orð hvor um annan.
Newsom sagði á samfélagsmiðlum að ummælin væru hættuleg og fælu jafnvel í sér landráð. Sagðist hann hafa fyrirskipað stofnunum Kaliforníu að fylgjast vel með því hvort ummæli forsetans yrðu túlkuð af erlendum aðilum sem boð um árás á ríkið.
Í sumum athugasemdum við færslur ríkisstjórans hvöttu íbúar í ríkinu til þess að Kalifornía og önnur ríki á vesturströnd Bandaríkjanna, þar sem demókratar eru við völd, kljúfi sig út úr Bandaríkjunum. Vísuðu viðkomandi einnig til þess að stuðningsfólk forsetans hafi klappað yfir ummælunum á fundinum.
Borgarstjórar Los Angeles og San Diego voru ekki síður harðorðir. Karen Bass borgarstjóri Los Angeles sagði Trump vera að stofna öryggi þessarar næststærstu borgar landsins í hættu. Todd Gloria borgarstjóri San Diego sagði borg sína ekki vera eitthvað sem mætti missa sín í þessu gáleysislega stríði forsetans og krafðist þess að hann léti af slíkum ummælum. Í San Diego eru ýmis hernaðarmannvirki meðal annars ein af stærstu herstöðvum bandaríska sjóhersins.
25
J.B. Pritzker ríkisstjóri Illinois er einn af hörðustu andstæðingum Trump og gekk svo langt að krefjast þess að 25. viðauki stjórnarskrár Bandaríkjanna yrði virkjaður, en hann kveður m.a. á um að hægt sé að setja forsetann af tímabundið.
Maria Shriver fjölmiðlakona og fyrrverandi eiginkona Arnold Schwarzenegger, kvikmyndastjörnu og fyrrverandi ríkisstjóra Kaliforníu, sagði að ummæli forsetans ættu að gera hvern einasta Bandaríkjamann hneykslaðan:
„Þetta er ekki eðlilegt. Þetta er ekki fyndið. Þessi hegðun ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá okkur öllum.“
Hvíta húsið brást skjótt við og sagði á samfélagsmiðlasíðum sínum að viðbrögðin væru beinlínis bjánaleg. Forsetinn hafi augljóslega átt við að með því að grípa til aðgerða gegn Íran væri komið í veg fyrir að landið gæti skotið kjarnorkuvopnum á þessar tvær borgir.
Stephen Cheung yfirmaður samskiptamála Hvíta hússins sagði Trump hafa gert Bandaríkin öruggari með því að koma í veg fyrir að Íran eignaðist kjarnorkuvopn. Forsetinn hafi nefnt borgirnar tvær sem dæmi um bandarískar borgir sem Íran hefði getað ráðist á, hefði ekkert verið gert til að hamla gegn hernaðarlegri getu Írans og áætlun þess um uppbyggingu kjarnorkuvopna. Það ætti sér ekki stoð í veruleikanum að hann hafi lýst yfir velþónkun yfir því að Los Angeles og San Diego yrðu fyrir árásum.
Það hefur hins vegar ekki komið fram hvers vegna Íran hefði frekar átt að vilja skjóta á vesturströnd Bandaríkjanna en austurströndina, sem er ekki jafn langt í burtu.