Umhverfis- og orkustofnun hefur kynnt áform um að veita Samherja bráðabirgðaheimild til að starfrækja fiskþurrkun í Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit en starfsleyfi þurrkunarinnar var fellt úr gildi, með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Reksturinn hefur verið umdeildur í sveitinni. Ósáttir íbúar kærðu starfsleyfið og vísuðu m.a. til lyktarmengunar, hávaða og mengaðs frárennslis. Aðrir í sveitinni og einnig sveitarstjórnin benda hins vegar á að um einn stærsta vinnustaðinn í sveitarfélaginu sé að ræða og sögðu það áfall að starfsleyfið hafi verið fellt úr gildi. Eftir að úrskurðurinn lá fyrir tilkynnti Samherji að fiskþurrkuninni yrði væntanlega lokað á meðan leitað yrði leiða til að halda starfseminni áfram og starfsfólki boðin önnur störf, en þá á Akureyri. Það virðist nú vera breytt.
Í byrjun sumars vísaði úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála frá kæru vegna ný starfsleyfis fiskþurrkunarinnar á þeim forsendum að Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra hafi skort valdheimildir til að taka ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins. Heilbrigðisnefnd umdæmisins hafi átt að gera það. Nefndin hafi ekki samþykkt formlega að fela eftirlitinu heimildir til slíkra ákvarðana eins og því hafi borið að gera samkvæmt lögum. Við útgáfu leyfisins hafi Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra farið út fyrir valdsvið sitt og því yrði að líta svo á að um tillögu til heilbrigðisnefndarinnar væri að ræða en ekki lokaákvörðun sem hægt væri síðan að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Sjá einnig: Kærðu fiskþurrkun Samherja - Valdi óásættanlegum óþef og hávaða og mengað frárennsli renni út í náttúruna
Fellt
Eftir þessa niðurstöðu samþykkti heilbrigðisnefnd Norðurlands Eystra á fundi sínum að gefa út starfsleyfið sem átti að gilda til ársins 2038.
Hinir ósáttu íbúar kærðu það snarlega til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem um miðjan september felldi það úr gildi á þeim forsendum að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hafi ekki uppfyllt þá lagaskyldu, sem á henni hvíldi, um að gæta að stefnumörkun um vatnsvernd í gildandi vatnaáætlun og sjá til þess að ástand þeirra vatnshlota sem yrði fyrir áhrifum af völdum starfseminnar myndi ekki versna.
Breytti engu í þeim efnum þótt niðurstaða fyrirliggjandi áhrifamats hafi verið sú að starfsemin myndi ekki leiða til þess að umhverfismarkmið vatnshlotanna næðust ekki, enda byggði sú niðurstaða á ófullnægjandi gögnum um ástand þeirra. Yrði og að benda á að straumvatnshlotið Laxá í Aðaldal nyti sérstakrar verndar samkvæmt lögum um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og hafi því verið ríkara tilefni en ella til þess að tryggja að fullnægjandi upplýsingar lægju fyrir áður en leyfið var veitt.
Framhaldslíf
Eftir að úrskurðurinn lá fyrir lagði Samherji áherslu á það í tilkynningu að starfsleyfið hafi verið fellt úr gildi vegna annmarka á málsmeðferð heilbrigðisnefndar en ekki vegna þess að félagið hefði gerst brotlegt í rekstri þurrkunarinnar eða vanrækt skyldur sínar. Unnið væri að því að leita leiða til að geta haldið starfseminni áfram.
Stjórnendur Samherja greindu þó RÚV frá því eftir að úrskurðurinn lá fyrir að hráefni yrði klárað og síðan yrði vinnslan stöðvuð.
Sveitarstjórn Þineyjarsveitar lýsti yfir miklum áhyggjum og vísaði til mikilvægis fiskþurrkunarinnar fyrir atvinnulífið á svæðinu.
Umhverfis- og orkustofnun hefur hins vegar nú kynnt á vef sínum áform um að veita Samherja bráðabirgðaheimild til að starfrækja fiskþurrkunina áfram.
Fyrirtækið sótti um þessa heimild fyrir um tveimur vikum.
Fram kemur í áformunum að Samerji hafi sótt um nýtt starfsleyfi hjá heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra og umsóknin sé fullnægjandi. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra telji að ríkar ástæður mæli með veitingu heimildarinnar og bendi á að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi hafnað öllum efnislegum kröfum kærenda, þar með talið um lyktarmengun, skipulagsmál og stöðvun starfsemi. Ógilding leyfisins hafi eingöngu byggt á skorti á opinberum gögnum um grunnástand viðtakandi vatnshlota í Vatnavefsjá.
Farvegur
Umhverfis- og orkustofnun segir að stöðvun starfseminnar hafi í för með sér að finna þurfi annan farveg fyrir hráefni og hafi stöðvun jafnframt áhrif á atvinnu starfsfólks á svæði þar sem atvinnuástand sé viðkvæmt. Með tilliti til þess að um sé að ræða starfsemi í fullum rekstri, þeirra ráðstafana sem þegar hafi verið gripið til vegna mengunarvarna og þeirra hagsmuna sem séu í húfi vegna stöðvunar starfseminnar sé það mat Umhverfis- og orkustofnunar að sérstakt undantekningartilvik sé fyrir hendi og brýn þörf sé á áframhaldandi starfsemi meðan unnið sé að því að bæta úr þeim annmörkum sem úrskurðarnefndin benti á í úrskurðinum.
Bendir stofnunin á að niðurstaða áhrifamats á vatnshlot fyrir starfsemi fiskþurrkunarverksmiðjunnar hafi verið sú að starfsemin sé ekki líkleg til að valda því að umhverfismarkmið vatnshlota verði ekki náð. Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í þessu tiltekna máli hafi verið talið að þær upplýsingar sem lágu fyrir, um ástand þeirra vatnshlota sem starfsemin kunni að hafa áhrif á, væru ófullnægjandi.
Segir stofnunin enn fremur að á gildistíma bráðabirgðaheimildarinnar verði unnt að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar séu til að bæta úr þeim annmörkum sem bent var á í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Bráðabirgðaheimildin verði háð skilyrðum um vöktun frárennslis frá starfseminni og viðtaka þess, auk skilyrða um mengunarvarnir sem miði að því að takmarka hættu á neikvæðum áhrifum starfseminnar á vatnshlot á gildistíma heimildarinnar.
Mun heimildin gilda þar til nýtt starfsleyfi verður gefið út en þó ekki lengur en í eitt ár. Á meðan á Samherji fara eftir ákvæðum starfsleyfisins sem fellt var úr gildi og vakta frárennslið frá verksmiðjunni.
Frestur til að gera athugasemdir við áformin rennur út á hádegi á morgun, 8. október.