Um þriggja metra gyllt stytta hefur verið afhjúpuð í einni byggingu Evrópuþingsins í Strassborg. Kallast hún „Appelsínugula plágan“ og er augljóslega af Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Breska blaðið The Telegraph greinir frá þessu.
Konungur óréttlætisins
Útlit styttunnar er vægast sagt ekki skjallandi. Trump er nakinn og gylltur, sitjandi á herðum annars manns. Heldur hann á golfkylfu í annarri hendinni en vog í hinni, sem er merki réttlætisins.
Á stöpli styttunnar segir:
Ég sit á baki manns.
Hann er að sökkva undan byrði minni.
Ég mun gera hvað sem er til að hjálpa honum.
Nema að fara af baki hans.
- Konungur óréttlætisins.
Styttan var hönnuð af Jens Galschiot, dönskum listamanni, og verður hún til sýnis í þinginu í vikunni.
„Trump er helsta ógn við lög og reglu heimsins. Við verðum að ræða um þetta og standa saman gegn svona tortímandi afli,“ sagði Galschiot.
Óttast ekki viðbrögð
Það var Evrópuþingmaðurinn Per Clausen sem stóð fyrir listasýningunni. Hann sagðist ekki óttast viðbrögð Trump.
„Ef einhver er svo viðkvæmur að hann þolir ekki að þetta listaverk sé sýnt á Evrópuþinginu, þá á hann ekkert erindi á alþjóðavettvang,“ sagði Clausen.
Styttan er ekki alveg glæný. Hún hefur verið til sýnis á COP ráðstefnunni í Belem í Brasilíu í fyrra og á öryggisráðstefnunni í Munchen í Þýskalandi.