Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni en verðbólga mældist 5,9% í september.
Fram kemur í tilkynningu að frá því að síðasta ákvörðun nefndarinnar var tekin hafi verðbólgan aukist um 0,6 prósentustig sem rekja megi að mestu leyti til hækkunar á eldsneyti. Eldsneytisverð hefur hækkað á heimsmarkaði vegna átakanna við Persaflóa og nú byrjun september var tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hér á landi felld niður.
„Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega 4% um nokkra hríð,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.
„Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.“
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu munu kynna ákvörðun peningastefnunefndar á blaðamannafundi klukkan 09:30.