Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ber heitið „Huldumaðurinn Guðmundur Elíasson myndhöggvari“ og kom út í byrjun þessa árs. Höfundur er Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag segja þau Aðalstein hafa haft lítinn áhuga á upplýsingum um æviferil listamannsins og hann hafi farið rangt með mörg atriði, þar á meðal systkinafjölda hans. Þremenningarnir komu að undirbúningi bókarinnar en þáttur þeirra átti að vera að skrifa um ævi listamannsins. En eftir að þau fengu í hendur drög að texta Aðalsteins sögðu þau sig frá verkinu. Í greininni segir:
„Drög að framlagi listfræðingsins bárust í desember 2024. Þau reyndust fyrst og fremst vera sundurlausar tilvitnanir í Íslendinga sem dvöldu í París á námsárum Guðmundar þar, ásamt getgátum, en óveruleg umfjöllun var um verk hans. Þar var dregin upp einhliða mynd af Guðmundi, svipað og listfræðingurinn hafði gert fyrir rúmum 40 árum í bók um Eirík Smith þar sem Guðmundur kemur við sögu. Þar sem margt í frásögninni var á skjön við þær heimildir sem við höfum var ljóst að gjörbreyta hefði þurft texta listfræðingsins ef taka átti tillit til frumheimilda, t.d. sendibréfa og kynna okkar af Guðmundi, ef gera átti textann birtingarhæfan. Því sögðum við okkur frá verkinu, enda augljóst að listfræðingurinn hafði ekki áhuga á upplýsingum um æviferil Guðmundar. Í þessu sambandi má nefna að hann hitti okkur sem mest samskipti höfðum haft við Guðmund og enn eru á lífi, en áhugi hans á því sem þar var rætt virðist hafa verið harla lítill.“
Gerði móður listamannsins að fátækri ekkju
Sem dæmi um rangfærslur nefna greinarhöfundar að Aðalsteinn hafi fækkað systkinum listmannsins úr fimm í þrjú og gert móður hans að fátækri ekkju þó að hún hafi getað stutt þrjá af sonum sínum til langdvalar erlendis og haft fjölbýlishús sitt að tekjustofni. Ruglað hafi verið með upplýsingar sem auðvelt hefði verið að sannreyna.
Í greininni eru dregnar fram nokkrar staðreyndavillur, t.d. röng lýsing á myndum. Þá sé það nefnt sem dæmi um hvað Guðmundur Elíarsson hafi verið utanveltu í íslenskri myndlistarsögu að hans sé ekki getið í bók Björns Th. Björnssonar, „Íslensk myndlist II“. Sannleikurinn sé hins vegar sá að Björn hafi í verki sínu ekki fjallað um þá kynslóð listamanna sem Guðmundur var af heldur látið staðar numið við næstu kynslóð á undan. Saka þau Aðalstein um að misbeita listasögu Björns Th.
Einnig benda greinarhöfundar á að nokkrar mannamyndir í bókinni séu tengdar röngum nöfnum og myndir sagðar ranglega glataðar. Aðalsteinn styðjist auk þess við getgátur um tilurð margra portrettverka Guðmundar. „Rangfærslurnar verða ekki taldar upp í stuttri athugasemdagrein þar sem endurritun bókartextans þyrfti hreinlega til,“ segja höfundar.
Í lok greinarinnar er ábyrgð í málinu vísað á útgefandann, „Hið íslenska bókmenntafélag“ og bókin kölluð furðurit:
„Höfundurinn dregur upp mynd af manni sem hann hvorki þekkti né virðist hafa haft áhuga á að afla sér traustra heimilda um, og gerir Guðmund því að „huldumanni“. Aðrir sem voru honum til leiðsagnar hafa greinilega ekki þekkt betur til, því út úr þokunni birtist spunaverk sem Hið íslenska bókmenntafélag leggur nafn sitt við með útgáfunni, þrátt fyrir að forráðamenn þess hafi fengið athugasemdir um handrit þessa furðurits í tölvupósti í apríl 2025. Hér verður því að vísa til ábyrgðar stjórnar Hins íslenska bókmenntafélags.“
Mun svara greininni
DV hafði samband við höfund bókarinnar, Aðalsteinn Ingólfsson. Hann vísar ásökunum í greininni á bug og bendir á að bókin hafi verið unnin í fullu samráði við dóttur listamannsins. Aðalsteinn boðar skrifleg andsvör við greininni á næstunni.