Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum til Keflavíkur, rétt fyrir lok árs 2023, hefur neitað sök en samkvæmt heimildum DV upplifðu farþegar og starfsfólk mikla ógn af framferði hans í flugvélinni.
Samkvæmt heimildum DV varð mikil geðshræring um borð vegna framferðis mannsins en meðal annars urðu börn vitni að því. Upplifðu farþegar og áhöfn atvikið sem mjög alvarlegt. Ástandið var metið það alvarlegt að farþegar fengu heimild tl að fjötra manninn niður í flugsæti sitt í samræmi við verklagsreglur Icelandair.
Maðurinn er í ákæru Lögreglustjórans á Suðurnesjum sakaður um að hafa ítrekað farið gegn fyrirmælum starfsfólks um borð, verið ógnandi við flugverja, hrópað að þeim og öðrum farþegum og ráðist með orðum og ofbeldi á flugverja. Hann er ennfremur sakaður um að hafa sparkað í flugfreyju og hótað henni lífláti. Sem fyrr segir neitar maðurinn sök.
Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjaness þann 15. október næskomandi.
Fréttin var uppfærð 12. október 2026.