Fréttir

Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“

Mynd
Gréta María Grétarsdóttir.

Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður félagsins brást hart við þegar íþrótta- og útilífsráð Reykjavíkurborgar ákvað að segja upp samningi við félagið um rekstur íþróttahússins í Austurbergi og að borgin taki yfir reksturinn. Sagði hann að borgin væri að úthýsa félaginu og gagnrýndi formann ráðsins, Bjarna Guðjónsson borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, harðlega. Bjarni lagði áherslu á að félagið myndi áfram fá æfingatíma í húsinu en Brynjar Karl sagði hann líta framhjá því að starfsemi félagsins snerist einnig um ýmislegt annað í þeirri viðleitni að styrkja iðkendur félagsins, sem kæmu margir hverjir úr erfiðum félagslegum aðstæðum. Nú hefur foreldri, með mikla reynslu úr viðskiptalífinu, eins af iðkendum félagsins, lagt sitt lóð á vogarskálarnar og krefst nánari skýringa á því hvers vegna borgin vilji ekki að Aþena reki íþróttahúsið í Austurbergi á meðan öll önnur íþróttahús í borginni séu rekin af íþróttafélögum.

Brynjar Karl gagnrýndi Bjarna harðlega eftir að ákveðið var að segja upp samningnum um rekstur hússins í Austurbergi. Gagnrýndi Brynjar Karl einnig að ekki væri til staðar vilji fyrir því að gera almennan rekstrarsamning við félagið eins og önnur íþróttafélög í borginni. Ítrekaði hann kröfu sína um Aþena fengi afnot af rými í húsinu sem hægt væri að nýta fyrir til að mynda fundi, kennslu, aðstoð við heimanám og fleira.

Sjá einnig: Úthúðar Bjarna Guðjóns eftir að samningi við Aþenu var sagt upp - „Virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri“

Breyting

Bjarni svaraði gagnrýninni í Facebook-færslu og sagði það rangt hjá Brynjari Karli að verið væri að úthýsa Aþenu úr Austurbergi. Þótt félagið sæi ekki lengur um rekstur hússins yrði því tryggðir æfingatímar.

Brynjar Karl svaraði þessu svari Bjarna og sagði þann síðarnefnda líta framhjá mikilvægum atriðum:

„Við gerðum honum skýrt að rekstrarsamningurinn væri grunnforsenda þess að við treystum okkur til að halda starfinu áfram. Bjarni vissi það þegar ákvörðunin var tekin. Að tala nú eingöngu um áframhaldandi æfingatíma er að svara annarri spurningu en þeirri sem málið snýst um. Það er hægt að skilja húsið eftir „opið“ en taka burt forsendurnar fyrir því að nokkur geti haldið úti starfinu innan þess. Gleymum ekki að aðeins 11 krakkar úr hverfinu stunduðu skipulagt íþróttastarf í Austurbergi utan skólatíma áður en Aþena hóf þar starfsemi. Húsið var líka „opið“ þá.“

Sagði Brynjar Karl að viðhorf Sjálfstæðismanna í borgarstjórn til Aþenu væri alllt annað og verra en á síðasta kjörtímabili þegar flokkurinn var í minnihluta:

„Þegar við mótmæltum ákvörðunum gamla meirihlutans var Sjálfstæðisflokkurinn okkur innan handar með ráðleggingar og loforð um úrbætur á nákvæmlega sama vandamáli og við stöndum frammi fyrir nú. Það vissu allir að við gætum ekki endalaust lagt eigin fjármuni og ómælda sjálfboðavinnu í félagslegt hjálparstarf í 111 Reykjavík á meðan við þyrftum stöðugt að verja það fyrir starfsfólki og embættismönnum borgarinnar.“

 

Tölur

Gréta María Grétarsdóttir fyrrum forstjóri Krónunnar og Prís, fyrrverandi landsliðskona í körfubolta og foreldri iðkanda hjá Aþenu ritar aðsenda grein á Vísi. Þar tekur hún undir gagnrýni Brynjars Karls á uppsögn Reykjavíkurborgar á samingnum við Aþenu um rekstur íþróttahússins í Austurbergi. Segir hún að frekari skýringa sé þörf á því hvers vegna borgin ætli sjálf að reka húsið en láta áfram önnur íþróttafélög um að reka öll hin íþróttahúsin í borginni:

„Þegar kjörnir fulltrúar leggja fram tillögur í ráðum borgarinnar eiga íbúar að geta treyst því að fagleg vinnubrögð séu viðhöfð. Eins og ég hef áður skrifað um þurfa ákvarðanir að byggjast á gögnum, skýrum markmiðum og mati á áhrifum þeirra.“

Vísar Gréta María til þess að í greinargerð með tillögu um uppsögn samningsins hafi þess verið getið að þessi breyting myndi bæta nýtingu hússins og skapa fjárhagslegt hagræði:

„Þar er hins vegar ekki settur fram tölulegur samanburður sem sýnir í hverju þetta hagræði felst.“

„Þegar fjárhagslegt hagræði er nefnt sem rök fyrir ákvörðun er eðlilegt að kalla eftir útreikningunum. Borgin þarf að birta samanburð á núverandi rekstri Austurbergs og fyrirhuguðum rekstri á hennar vegum, miðað við sama opnunartíma og þjónustu. Hvaða kostnaðarliðir eiga að lækka? Hvaða viðbótarkostnaður fylgir yfirtökunni? Hvernig er tekið tillit til þess kostnaðar sem Aþena hefur sjálf staðið straum af?“

„Samkvæmt tillögunni á borgin að taka yfir ráðningarsambönd starfsfólksins og halda kjörum þess og réttindum óskertum. Það er því ekki augljóst hvaðan sparnaðurinn á að koma. Hann þarf að sýna með tölum.Ef áherslan er almennt betri nýting og hagkvæmari rekstur íþróttamannvirkja þarf líka að skýra forgangsröðunina. Hvaða samanburður liggur að baki því að Austurberg verði fyrir valinu?“

Önnur hús

Gréta María segir að eðlilegt hefði verið að bera nýtinguna í Austurbergi saman við nýtingu á öðrum íþróttahúsum borgarinnar, sem eru rekin af öðrum íþróttafélögum:

„Betri nýting er önnur meginröksemd tillögunnar. Þá þarf að liggja fyrir hvernig húsið er nýtt í dag og hvaða eftirspurn er óuppfyllt. Hvaða félög hafa óskað eftir tímum í Austurbergi, hversu mörgum og hvenær? Hvaða óskum hefur verið hafnað? Aþena er ekki eini notandi hússins og því þarf að skoða heildarnýtinguna áður en núverandi fyrirkomulag er talið hindra uppbyggingu annarra.“

Gréta María segir að málið sé ekki svo einfalt að það snúist bara um æfingatíma. Aþena hafi náð til stúlkna sem áður hafi síður tekið þátt í íþróttum. Árangur félagsins í að efla íþróttastarf barna og ungmenna í Efra-Breiðholti byggist á þrautseigju og mikilli vinnu en ekki eingöngu aðgangi að íþróttahúsi. Nefnir hún ýmsar spurningar sem sé ósvarað eftir almennar yfirlýsingar meirihlutans í borginni um að efla íþróttastarf í hverfinu og samvinnu milli íþróttafélaga.

Hvar?

Gréta María segir marga hafa vænst bættra vinnubragða með nýjum meirihluta í borginni en það sé ekki raunin í þessu tilfelli:

„Útreikningar, þarfagreining og raunverulegt samráð eiga að koma á undan ákvörðuninni. Börnin í Breiðholti eiga skilið að fyrirheit um hagræði og betra starf séu studd gögnum og skýrri áætlun um framtíð þeirra.“

„Hvar eru þau gögn?“