Fréttir

Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar

Mynd

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. 

Í ákæru segir að brotin hafi verið framin í flugi Icelandair frá Baltimore í Bandaríkjunum til Keflavíkur miðvikudagsmorguninn 27. desember árið 2023.

Ákærði er sakaður um að hafa veist að flugfreyju, sparkað í hægri sköflung hennar og hótað henni lífláti. 

Einnig er hann sakaður um að hafa ítrekað farið gegn fyrirmælum starfsfólks um borð, verið „ógnandi við flugverja, hrópaði að þeim og öðrum farþegum og réðst með orðum og ofbeldi á flugverja“ segir í ákærunni. 

Flugfreyjan sem varð fyrir árás mannsins krefst miskabóta að fjárhæð 1,5 milljónir króna. 

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og verður aðalmeðferð 15. október. 

Leiðrétting: Ranglega var fullyrt í fyrri útgáfu fréttarinnar að ákærði væri íslenskur læknir á níræðisaldri. Hið rétta er að ákærði er rúmlega sextugur og starfar sem taugasálfræðingur í Bandaríkjunum. Beðist er velvirðingar á þessu.