Rússar gerðu umfangsmiklar eldflauga- og drónaárásir á Kænugarð og fleiri staði í Úkraínu í nótt og í morgun, sama dag og Vladimír Pútín Rússlandsforseti fagnar 74 ára afmæli sínu. Að minnsta kosti tólf eru sagðir hafa látið lífið í árásunum.
Úkraínsk leyniþjónusta hafði varað við því fyrirfram að Rússar kynnu að gera stórfelldar árásir á afmælisdegi Pútíns og Volodímír Selenskí Úkraínuforseti sagði í ávarpi í gærkvöldi að nýjar leyniþjónustuupplýsingar bentu til þess að umfangsmikil árás væri í undirbúningi.
Viðvaranirnar reyndust á rökum reistar.
„Allur Kænugarður er óttasleginn“
Loftvarnarflautur ómuðu um Kænugarð snemma í morgun og fjölmargir íbúar leituðu skjóls á neðanjarðarlestarstöðvum með töskur, dýnur og teppi.
„Við gripum dótið okkar og komum hingað. Við búum hérna rétt hjá,“ sagði Iryna Rybalchenko, bankastarfsmaður sem leitaði skjóls á einni stöðinni, samkvæmt frétt Daily Mail.
„Allur Kænugarður er óttasleginn. Við vorum föst í vinnunni í dag og allir – bæði í hópspjöllunum okkar og yfirmennirnir – voru að senda okkur skilaboð og segja okkur að fara varlega.“
Rússneska varnarmálaráðuneytið staðfesti að gerð hefði verið umfangsmikil árás með langdrægum eldlfaugum og drónum. Rússnesk stjórnvöld segja árásirnar hafa beinst að hergagnaiðnaði og öðrum mannvirkjum sem tengjast úkraínska hernum.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Rússa um skotmörkin létust óbreyttir borgarar í árásunum og íbúðarhús urðu fyrir skemmdum.
Börn meðal særðra
Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, sagði tvo hafa látist í eldsvoða í Darnytskyi-hverfinu eftir árás. Tveimur öðrum var bjargað úr eldinum.
Björgunarsveitir leituðu jafnframt í rústum fimm hæða byggingar í Pryluky í Tsjernihív-héraði og óttast er að tala látinna kunni að hækka.
„Enn gæti verið fólk undir rústunum. Viðbragðsaðilar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að finna alla,“ sagði Selenskí.
Tveir létust þegar eldflaugar hæfðu háhýsi í Dnípró og Kremenchuk og tveir til viðbótar í Oleksandriya.
Í Sumy-héraði létust tveir í drónaárásum og tugir særðust. Meðal þeirra voru þrjú börn, sjö, fjórtán og sextán ára, sem særðust þegar skotið var á fjölbýlishús.
Árásum Rússa á Kænugarð hefur fjölgað verulega undanfarnar vikur nú þegar veturinn nálgast. Sérstaklega hefur verið ráðist á orku- og samgöngumannvirki og hafa brýr, vegir og járnbrautir orðið fyrir árásum.