„Leigubremsan er náttúrulega bara augljóslega mjög heimskuleg,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundi bankans í morgun þegar hann var spurður um nýtt frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á húsaleigulögum þar sem meðal annars er komið á svokallaðri leigubremsu. Leigubremsa þýðir að hækkun á leiguverði má aldrei verða meiri en hækkun á vísitölu neysluverðs. Ef að leigusali ætlar að hækka leiguna reglulega á leigutímanum þarf það að koma fram í leigusamningnum og verður bannað að hækka leiguna umfram það.
Ásgeir er ekki hrifinn. „Það er engin lausn að setja á verðþak á leigu. Það bara leiðir til lengri tíma til þess að framboð á leiguhúsnæði minnkar og alls konar aðrir hlutir gerast. Þetta er náttúrulega bara röng, algjörlega röng viðbrögð sem kemur leigjendum verst,“ sagði Ásgeir. Hann sé ekki viss um að það hafi áhrif á verðbólguna.
„Þetta er eitthvað sem er kennt náttúrulega í öllum grunnkúrsum í hagfræði og allir hagfræðingar ættu að vita.“