Það var tilfinningaþrungin stund á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeldri hennar. Ambika ólst upp í SOS barnaþorpi í Greenfields á Indlandi og sem barn skrifaðist hún á við Hafdísi.
Það vakti landsathygli sumarið 2025 þegar Ambika bað SOS Barnaþorpin á Íslandi um aðstoð við að finna Hafdísi en Ambika og eiginmaður hennar voru þá að skipuleggja ferðalag til Íslands. Ambika hafði aðeins millinafn Hafdísar og gerði það leitina erfiðari því vegna persónuverndarlaga var ekki lengur tenging á milli þeirra í tölvukerfi samtakanna eftir allan þennan tíma.
Sjá einnig: Ambika er á leið til Íslands - Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning
Ákall á Facebooksíðu SOS á Íslandi varð til þess að Hafdís fannst í júní 2025. Það ár varð ekkert af heimsókn Ambiku til Íslands það árið vegna erfiðleika við að fá vegabréfsáritun. Það gekk þó öllu betur ári síðar og kom Ambika til landsins í lok september ásamt eiginmanni sínum og fóru þau í hringferð um Ísland.
Að henni lokinni kom að því að Ambika og Hafdís gátu loksins hist á skrifstofu SOS Barnaþorpanna í Hamraborg í Kópavogi. Ambika gekk hröðum skrefum að Hafdísi og föðmuðust þær vel og innilega milli þess sem þær þurrkuðu gleðitár.
„Mikið er gott að sjá þig,“ voru fyrstu orð Hafdísar og föðmuðust þær vel og lengi. Ambika svaraði Hafdísi fyrir að þakka henni innilega fyrir stuðninginn á árum áður. „Það var alveg sjálfsagt,“ sagði Hafdís.
Ólst upp í barnaþorpinu
DV fjallaði ítarlega um leitina á sínum tíma sem og sögu Amiku. Það var kaldur desembermorgunn á Indlandi árið 1993 þegar Amika var vafin í handklæði og lögð í fang SOS-móður sinnar í barnaþorpi nærri Nýju Delí. Þar ólst hún upp og þegar var orðin eldri að áttaði hún sig á að líf hennar var öðruvísi en annarra barna.
Sjá einnig: Djúpt snortin yfir því að íslenska þjóðin tók þátt í leitinni
Á barnsaldri byrjaði Ambika að fá póstkort frá Íslandi. Þau komu frá styrktarforeldri hennar, konu að nafni Hafdís. „Ég var í sjöunda eða áttunda bekk þegar ég byrjaði að skrifa henni til baka,“ segir Ambika. „Ráðgjafarnir hjálpuðu mér að skrifa á ensku. Ég man sérstaklega eftir póstkortunum með myndum af norðurljósunum. Ég geymdi þau öll.“
Þegar árin liðu hættu kortin að berast. Ambika flutti úr barnaþorpinu, fór í háskóla, giftist og lífið hélt áfram. En póstkortin héldu áfram að fylgja henni. „Einn daginn var ég að taka til og sýndi eiginmanni mínum póstkortin. Hann sagði: „Af hverju reynirðu ekki að finna hana?’“ Þau leituðu á samfélagsmiðlum, en án árangurs. Þegar auglýst var eftir Hafdísi fannst hún fljótt. „Þegar ég heyrði það trúði ég því varla,“ segir Ambika. „Að allt Ísland skyldi hafa tekið þátt í leitinni að Hafdísi – mér fannst það ótrúlegt og dásamlegt og undirstrikar að fólk um allan heim getur sameinast í góðverki.“
Hafdís átti erfitt með að meðtaka að Ambika væri að leita að sér. „Það tók mig svolítinn tíma að meðtaka þetta, að hún væri raunverulega að leita að mér núna. Mér þótti mjög vænt um það og ég er búin að meðtaka það núna og fá yndislegar myndir af henni.“
Hafir þú áhuga á að verða SOS foreldri má finna allar upplýsingar á vef SOS-barnaþorpanna.