Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaða upphæð sóknargjalda. Er raunar skorað á Alþingi að fara að lögum um gjaldið og hækka hina fyrirhuguðu upphæð en í umsögn kirkjunnar segir að um 60 prósent skerðingu sé að ræða, frá því sem lögin kveði á um.
Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem þjóðkirkjan gerir athugasemdir við hversu lágt sóknargjaldið sé. Í þetta skipti gerir kirkjan athugasemd við fyrirhugaða upphæð sóknargjalds á næsta ári, samkvæmt frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga en það er nú til meðferðar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.
Meðal þeirra laga sem breyta á með frumvarpinu eru lög um sóknargjald o.fl.en samkvæmt frumvarpinu á sóknargjald, fyrir hvern einstakling 16 ára eða eldri sem skráður er í trú- eða lífsskoðunarfélag að vera 1.270 krónur.
Í umsögn þjóðkirkjunnar um frumvarpið, sem raunar er send í nafni sóknasambands kirkjunnar, segir að gera megi ráð fyrir að sóknargjald fyrir árið 2027 geti óskert numið um 2.900 krónum á mánuði samkvæmt 2. grein laga um sóknargjald o.fl, með síðari breytingum. Þó sé erfitt að reikna gjaldið nákvæmlega fyrr en lögbundnar forsendur liggi fyrir, eigi síðar en 1. ágúst 2027. Áformuð skerðing, miðað við þetta, nálgist 60 prósent.
Hvað segja lögin?
Í 2. grein laganna, 3. tölulið, segir að sóknargjaldið ákvarðist af endanlegri ákvörðun gjaldsins frá fyrra ári, að viðbættri hækkun er samsvari þeirri hækkun er kunni að verða á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga á öllu landinu milli næstliðinna tekjuára á undan gjaldári. Verði gerðar breytingar á útreikningi tekjuskattsstofns skuli taka tillit til þess við ákvörðun gjaldsins hverju sinni. Hækkun á gjaldi samkvæmt þessari grein skuli ákvarðast af ráðherra í samræmi við upplýsingar frá ríkisskattstjóra eigi síðar en 1. ágúst ár hvert.
Í umsögn þjóðkirkjunnar segir að sú upphæð sóknargjaldsins sem nú sé lögð til feli í sér óviðunandi skerðingu. Skilaskyld sóknargjöld til þjóðkirkjunnar hafi verið skert frá árinu 2009. Tillögu um þessa fjárhæð sóknargjalds sé andmælt harðlega. Þá sé því mótmælt að svo skert fjárhæð verði notuð sem viðmið sóknargjalds framtíðarinnar með því eftirleiðis að uppfæra fjárhæðina í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga.
Að lokum er skorað er á efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að leggja til þá breytingu að fjárhæð sóknargjald verði eins og lögin um gjaldið kveði á um.