Fréttir

Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“

Mynd
Myndin er samsett. Mynd af Þorgerði og Rubio:Utanríkisráðuneytið/Anton Brink

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að heimsókn Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands hafi staðfest að afsannað fullyrðingar um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, hafi með framgöngu sinni í embætti lokað á samskipti þjóðanna tveggja. Ekki eru þó allir sammála ráðherranum fyrrverandi, heimsóknin hafi verið þrátt fyrir Þorgerði en ekki vegna hennar. 

Össur skrifar um heimsókn Rubio á Facebook:

„Heimsókn Rubíós til Íslands afsannaði alla vitleysuna í Mogganum, Hannesi Hólmsteini og ysta hægrinu um að Þorgerður Katrín hefði með einarðri og prinsipfastri framgöngu lokað á samskipti Bandaríkjanna við Ísland.

Þvert á móti virðist ræða hennar á Allsherjarþinginu, sem svartstakkar hér heima froðufelldu yfir, hafa þyngt pundið í henni og Íslandi. Eða afhverju kemur Rúbíó hingað beint ofan í að hún réttilega kallaði Netanjahú, fantinn sem stýrir Ísrael, „hugleysingja“?

Heimsókn hans staðfestir þar að auki stefnubreytingu Bandaríkjanna gagnvart Íslandi sem varð undir lok fyrra kjörtímabils Trumps þegar hann rauf bann demókrata við að hingað kæmu ráðherrar Bandaríkjastjórnar vegna hvalveiða. Svo honum er ekki alls varnað.

Heimsókn Rúbíós staðfestir svart á hvítu að Þorgerður Katrín er stjórnmálamaður sem nær máli á alþjóðavísu.“

Mynd
Utanríkisráðuneytið/Anton Brink

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, er ekki alfarið sammála fyrrverandi utanríkisráðherra. Hannes skrifar í athugasemd að heimsóknin sýni að NEI-hreyfingin í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi á réttu að standa. Engin hætta sé á því að Bandaríkin rjúfi varnarsamstarf við Ísland.

„Það væri þeim hernaðarlega mikilvægt. Þeir eru í þessu samstarfi sjálfra sín vegna, en ekki Íslands vegna. Jámenn sögðu allt annað, að hætta væri á, að Bandaríkin misstu áhuga á Íslandi. Við yrðum þess vegna að halla okkur að Evrópusambandinu. En auðvitað var ræða Þorgerðar Katrínar á allsherjarþinginu hreint hneyksli. Rubio kemur þrátt fyrir hana, ekki vegna hennar.“

Hannes bætir við að það sé algjör hneisa fyrir Ísland að klerkastjórnin í Íran hafi heillast af ræðu Þorgerðar. Við Össur segir hann: „Mælskubrögð þín geta engu breytt um það.“

Láta ógert að skíta í rjómann

Hjörtur J. Guðmundsson, alþjóðastjórnmálafræðingur, tekur undir með Hannesi og segir að Rubio átti sig á því að Þorgerður Katrín sé ekki Ísland, rétt eins og Donald Trump sé ekki Bandaríkin. Heimsókn Rubio sé því þrátt fyrir Þorgerði en ekki vegna hennar.

Stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson segir að Hannes sé eitthvað að misskilja ef hann haldi að áhyggjur hafi beinst að því að Bandaríkin væru áhugalaus um Ísland. Þvert á móti.

„Þú ert að misskilja hrapallega ef þú heldur að fólk hafi áhyggjur af því að Bandaríkin hafi ekki nógu mikinn áhuga á Íslandi. Áhyggjurnar snúa að því að þau hafi of mikinn áhuga á Íslandi og virði fullveldi okkar einskis, eins og þau hafa sýnt gagnvart Grænlandi. Sem og að varnarsamningurinn verði lítils virði ef við þurfum einhvern tímann á hjálp þeirra að halda og þau telja það ekki vera í eigin hag.“

Gústaf Níelsson, sagnfræðingur og samfélagsrýnir, telur að Þorgerður hafi skaðað hagsmuni Íslands. Það sama eigi við um Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem í ráðherratíð sinni lokaði sendiráði Íslands í Moskvu.

„Fullorðnir menn eins og við félagi Össur eigum að láta ógert að skíta í rjómann. Þorgerður Katrín hefur illilega skaðað hagsmuni Íslands í bráð og lengd á alþjóðavettvangi og hið sama má segja um Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sem lokaði sendiráði Íslands í Moskvu af fyrirhyggjuleysi og engum öðrum ríkjum hugkvæmdist það. Þær eiga það þó sameiginlegt að hafa báðar verið varaformenn Sjálfstæðisflokksins.“

Mynd
Utanríkisráðuneytið/Anton Brink

Ísland mikilvægt fyrir öryggi Bandaríkjanna

Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund þeirra í Höfða í dag þar sem hann sagði að áratugum saman hafi Ísland verið strategískur staður sem skipti máli fyrir sameiginlegt öryggi Bandaríkjanna, Íslands og annarra vinaþjóða. Hann útilokaði ekki frekari uppbyggingu Bandaríkjahers á Íslandi en tók fram að slíkt yrði ávallt gert með samþykki íslenskra yfirvalda. Hann nefndi eins tækifæri til samstarfs í efnahagsmálum. Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi ætlaði sér að fjölga bandarískum ferðamönnum og eins ætlar Rubio að fylgja fundinum í dag eftir með því að fá bandarísk fyrirtæki í sérstaka heimsókn til Íslands. Hann útilokaði fríverslunarsamning, enda tími þeirra liðinn, en sagði tækifæri til staðar fyrir tvíhliða samninga.