Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir formann Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hafa farið með rangt mál er hann hélt því fram að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru 180 og að það væri sambærilegt því sem tíðkist á hinum Norðurlöndunum. Sigvaldi segir báðar fullyrðingarnar vera rangar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Sigvalda á Vísir.is. Hann staðhæfir að kennsludagarnir séu um 170 en ekki 180 því í síðarnefndu tölunni séu skólasetning, jólaball, foreldraviðtöl og skólaslit. Þar sé ekki um kennsludaga að ræða.
Þá fullyrðir Sigvaldi, og vitnar í OECD og Eurodyce, að skólaárið á Íslandi sé 30 dögum styttra en í Danmörku, 20 dögum styttra en í Noregi, 17 dögum styttra en í Finnlandi og 8 dögum styttra en í Svíþjóð. Dönsk börn fái 40% fleiri kennslustundir en íslensk börn sem samsvari fjórum kennsluárum yfir grunnskólagönguna.
Spyrja hvort ummælin samrýmist siðareglum
Sigvaldi greinir frá því stjórn Heimilis og skóla hafi sent erindi til stjórnar Kennarsambandsins þar sem óskað er eftir því að kannað verið hvort ummæli formannsins samrýmist siðareglum sambandsins.
Erindið má lesa hér.
Vilja lengingu skólaársins
Sigvaldi segir að skólaþróun á Íslandi snúist um of um kjarabaráttu kennara og of lítið um þarfir nemenda og árangur þeirra. Kallar hann eftir lengingu skólaársins:
„Því miður vekur það ugg að í nýjustu tillögum ráðherra til að bæta námsárangur barna í kjölfar PISA er ekkert um lengingu skólaársins. Maður hlýtur að spyrja sig hvort rangfærslurnar og upplýsingaóreiðan, sem haldið var uppi þegar málið kom fyrst fram, hafi orðið til þess að bakkað var með það. Ef svo er, þá hefur kjarabarátta kennara bitnað á börnunum, ekki er lengur hægt að ræða málin út frá staðreyndum, og íslensk börn fá ekki skólaár sem er raunverulega sambærilegt, í lengd, kennsludögum og tíma, við það sem jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum njóta.“
Segir ennfremur að Heimili og skóli skori á Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að endurvekja áform um að lengingu skólaársins:
„Börnin okkar eiga það skilið að ákvarðanir um skólann þeirra byggi á staðreyndum, og að hagsmunir þeirra séu settir í fyrsta sæti.“
Greinina má lesa hér.