Fréttir

Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja

Mynd
Myndin er úr safni

Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala námsmanns, sem leigir íbúð sem er ætluð er námsmönnum, að greiða skaðabætur vegna dekkja í hans eigu sem voru fjarlægð úr sameign hússins og fargað.

Þess er ekki getið hver leigusalinn er en fram kemur að námsmaðurinn hafi geymt dekkin í bílageymslu hússins þar sem íbúðin er. Almennt eru raunar fjölbýlishús með námsmannaíbúðum ekki kynnt með þeim hætti að þar séu bílageymslur. 

Námsmaðurinn krafðist bóta fyrir dekkin með kæru til nefndarinnar. Fram kom í kærunni að í janúar síðastliðnum hafi hann verið á leið í skóla að morgni dags er hann hafi séð miða á dekkjum í hans eigu þar sem fram kom að dekkin mættu ekki vera í bílageymslu og að það yrði að fjarlægja þau. Þar sem hann hafi ekki viljað verða of seinn í kennslustund hafi hann ákveðið að koma dekkjunum annað í geymslu eftir skóla. Er hann hafi komið aftur heim í lok dags hafi aftur á móti verið búið að fjarlægja dekkin. Hann hafi sent tölvupóst til leigusala sem hafi svarað degi síðar að búið væri að farga dekkjunum. 

Leigusalinn hafi talið dekkin fela í sér brunahættu og að þau væru bönnuð í byggingunni. Þar sem ekki hafi verið brugðist við viðvörun, sem leigusali hafi sagst hafa límt á dekkin, daginn áður en námsmaðurinn tók eftir henni, hafi þeim verið fargað.

Augljóst

Í kærunni sagði enn fremur að um hafi verið að ræða tvo umganga, alls átta dekk, og verðmæti þeirra um 300.000 krónur. Þau hafi verið staðsett beint fyrir framan bifreið námsmannsins í stæði hans í bílageymslu hússins og þannig augljóst bæði hver væri eigandi þeirra sem og að þau hefðu ekki verið skilin eftir.

Sagði námsmaðurinn enn fremur að á viðvöruninni sem hafi verið sett á dekkin hafi ekki verið tilgreindur sérstakur frestur eða sérstök hætta tilgreind. Hafi hann því talið sjálfsagt að fara með dekkin næsta dag, sem væri innan eins sólarhrings frá því viðvörun hafi verið sett á þau. Þá væri ekki að finna sérstök ákvæði varðandi dekk í húsreglum.

Leigusalinn vísaði til brunahættu af dekkjunum í sínum andsvörum en námsmaðurinn bætti við athugasemdum þar sem fram kom að tilkynningarskylda hafi ekki verið nægilega uppfyllt og meðalhófs ekki gætt. Of skammur tími hafi liðið frá því viðvörun var sett á dekkin þar til þau voru fjarlægð. Um gróft brot gegn eignarrétti hans væri að ræða. Þá hafi spurningum hans um hver hafi farið með dekkin, hvar þeim hafi verið fargað og hvort til væri kvittun fyrir því, ekki verið svarað. Eðlilegast hefði verið að fjarlægja þau, hafi ekki verið hægt að bíða í eðlilegan tíma frá því viðvörun var gefin, og geyma í tiltekin tíma þar til eigandi myndi vitja þeirra. 

Teldist leigusalinn hafa heimild til að færa til muni leigjenda vegna reglna um sameiginleg rými í eigninni eða vegna eldvarnarregla, hefði hann þó ekki heimild til að farga eignum íbúa, hvað þá án frekari aðvörunar eða sanngjarns frests.

Bætur

Kærunefnd húsamála tekur heils hugar undir með námsmanninum í sinni niðurstöðu og telur leigusalann ekki hafa haft heimild til að farga dekkjunum með þeim hætti sem gert var, meðal annars vegna þess að námsmanninum hafi ekki verið gefinn raunhæfur kostur á að færa sjálfur dekkin til geymslu annars staðar vegna hins skamma frests, sem þó hafi ekki verið tilgreindur í viðvöruninni. 

Bendir nefndin á að spurningum námsmannsins um hvar dekkjunum hafi verið fargað hafi ekki verið svarað og sömuleiðis hafi ekki verið orðið við beiðni hans um að kvittun, yfir förgunina, yrði framvísað. Þá hafi leigusalinn ekki mótmælt fullyrðingu námsmannsins um að verðmæti dekkjanna væri 300.000 krónur. Nefndin fellst á með námsmanninum að með því að farga dekkjunum án samþykkis hans og án þess að hafa gefið honum fullnægjandi frest til að bæta úr því ástandi sem leigusalinn taldi ófullnægjandi hafi hann brotið gegn skyldum sínum sem leigusali, til að virða eigur og réttindi leigutaka. Leigusalinn beri því skaðabótaábyrgð á tjóni námsmannsins.

Því er lagt fyrir leigusalann að greiða námsmanninum 300.000 krónur í skaðabætur.