Eldra fólk sem hefur nýlega misst maka hefur leitað til Guðmundar Inga Kristinssonar þingmanns eftir að hafa fengið „kaldranaleg bréf“ og kröfur frá Tryggingastofnun og jafnvel skattyfirvöldum.
Guðmundur Ingi, sem er þingmaður utan flokka, vakti athygli á þessu á Alþingi í dag undir dagskrárliðnum störf þingsins.
Guðmundur benti á að þegar fólk er á versta stað í lífinu vegna veikinda eða makamissis þurfi að sýna því samúð tillitsemi og virðingu.
„Ég er að tala um eldra fólk sem er jafnvel með fjölfötlun og þroskahömlun. Því miður hefur eldra fólk haft samband við mig sem er í þeirri aðstöðu að hafa misst maka og er að fá rukkun frá Tryggingastofnun ríkisins og jafnvel Skattinum; kaldranaleg bréf inn um lúguna og viðkomandi er bent á að hann geti farið inn á island.is og leitað sér upplýsinga,“ sagði hann og bætti við að um væri að ræða breiðan hóp fólks sem er jafnvel lögblint, með fjölfötlun, lyfjað eða með elliglöp.
„Við verðum að sýna þessu fólki tillitssemi og sjá til þess að það sé komið fram við það þannig að það viti hvert það getur leitað. Það á ekki að vera mjög flókið fyrir Tryggingastofnun ríkisins að hafa mann sem sendir bara vinalegt bréf á viðkomandi og bendir honum á að hann geti fengið tíma hjá viðkomandi og honum verði stýrt og leiðbeint um hvernig hann eigi að ganga frá sínum hlutum.“
Að mati Guðmundar er ekki eðlilegt að fólk þurfi að leita út í bæ og viti ekkert hvað það eigi að gera vegna þess að það er kannski einstætt.
„Makinn er farinn og sá sem fær kröfuna hefur ekki séð um fjármálin og hann hefur ekki hugmynd um hvað hann á að gera og veit ekkert hvert hann á að leita. Tryggingastofnun getur fundið viðkomandi einstakling og sent honum bréf. En ég spyr mig: Er það gervigreindin sem sendir bréfin? Þessi bréf eru steindauð, þau eru bara innheimta,“ sagði Guðmundur Ingi sem endaði ræðu sína á skýrum skilaboðum.
„Sendum bréf sem fólkið skilur og gefum því tíma. Segjum við það: Þú kemur hingað til Tryggingastofnunar og hittir fulltrúa og við förum í gegnum málið og sýnum þér hvað er hægt að gera. Gleymum ekki að ef það eru sérstakar aðstæður til staðar er hægt að fella niður viðkomandi kröfu. Þetta er mjög einfalt og ég held að þetta sé einmitt það sem við þurfum að gera og kostar ekki neitt.“