Fréttir

Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ

Mynd
Lögreglan á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. 

Nútíminn greinir frá. Grunur er um að fleiri en einn hafi ráðist á brotaþola og barefli hafi verið beitt í árásinni. Brotaþoli er maður á þrítugsaldri og samkvæmt heimildum Nútímans hlaut hann mörg beinbrot og missti tennur í árásinni. Þó kom í ljós að áverkarnir voru ekki jafnalvarlegir og talið var í fyrstu. 

Lögregla hefur framkvæmt húsleitir vegna málsins og tveir sakborningar voru handteknir og færðir til skýrslutöku. Voru þeir látnir lausir að loknum skýrslutökunum.

Rannsókn málsins stendur yfir en í skriflegu svari lögreglu til Nútímans segir: 

„Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem átti sér stað aðfaranótt föstudags í Reykjanesbæ. Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir á þessu stigi rannsóknarinnar leikur grunur á að fleiri en einn aðili hafi ráðist á brotaþola og að barefli hafi verið beitt.“