Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, ræðir um útrunnin gjafakort í pistli á Vísi og segir þau eigi vera gleðigjöf, en ekki gjöf sem hverfur vegna smáa letursins.
„Margir kannast [...] eflaust við að hafa gleymt gjafakorti ofan í skúffu eða veski, eða að kortið hafi týnst tímabundið og finnist kannski þegar gildistíminn er liðinn,“ segir Kolbrún og bætir við:
„Það vekur auðvitað upp spurningar um hvert fjármunirnir fara.“
Umhugsunarvert
„Á bak við hvert gjafakort eru raunverulegir fjármunir. Greitt hefur verið fyrirfram fyrir vöru eða þjónustu sem afhenda á síðar. Sé það aldrei notað hefur fyrirtækið fengið greiðslu án þess að afhenda nokkuð á móti. Þetta er umhugsunarvert,“ segir Kolbrún.
Hún segir að hún hafi verið að skoða hvort það sé nauðsynlegt að leggja fram frumvarp um réttindi eigenda gjafakorta.
„Upphaflega var hugmyndin að setja skýran lágmarksgildistíma á gjafakort, til dæmis fjögur ár. Eftir að hafa skoðað málið betur verður sú spurning áleitnari hvers vegna gjafakort sem greitt hefur verið fyrir ætti yfirhöfuð að renna út,“ segir Kolbrún og bætir við að rökin fyrir ótímabundnum gildistíma séu sterk.
„Fyrirtækið hefur fengið fjármunina en ekki látið vöru eða þjónustu af hendi. Hvers vegna ætti réttur handhafa kortsins þá að falla niður?“
Þetta þarf að skoða
Kolbrún segir að málið sé ekki alveg svo einfal.t
„Ótímabundinn gildistími gæti þýtt að fyrirtæki þyrftu að halda utan um gamlar skuldbindingar árum eða áratugum saman. Skoða þyrfti hvernig bókfæra ætti slíkar skuldbindingar í rekstri fyrirtækja og hvernig þær samræmdust almennum reglum um fyrningu. Fyrirtæki geta líka hætt starfsemi, skipt um eigendur eða breytt starfsemi sinni. Stundum kunna einnig að vera málefnalegar ástæður fyrir takmörkuðum gildistíma.“
Kolbrún segir að rétt væri að skoða þessi mál gaumgæfilega með hag og réttindi neytenda að leiðarljósi. Hún segir reglurnar þurfa að vera skýrar og sanngjarnar.
Lestu pistilinn hennar í heild sinni hér.