Kærunefnd húsamála hefur hafnað kröfu konu um hærri endurgreiðslu, en hún hafði þegar fengið, á leigu fyrir íbúð sem varð altjón í vegna bruna. Konan flutti út úr íbúðinni um nokkurra mánaða skeið en vildi meina að íbúðin hefði enn verið óíbúðarhæf þegar hún flutti aftur inn. Nefndin tók ekki undir það.
Það kemur ekki fram hvar á landinu íbúðin er og hver leigusali konunnar er en af samhengi úrskurðar nefndarinnar að ráða virðist leigusalinn vera sveitarfélag.
Konan krafðist um 3,6 milljóna króna vegna leigu sem hún hafi innt af hendi vegna ónothæfs húsnæðis og rekstrargjalda tengdum íbúðinni, allt að frádreginni innborgun sem nam um 2,4 milljónum króna.
Konan sagði í kæru sinni að altjón hafi orðið í íbúðinni vegna bruna í september 2023 og þegar hún hafi fengið eignina aftur afhenta í febrúar 2024 hafi loftgæði hennar ekki verið viðunandi og íbúðin ekki íbúðarhæf. Eiturgufur hafi verið í eigninni og loftgæði heilsuspillandi svo hún hafi neyðst til að flytja út. Leigusalinn hafi boðið henni aðra íbúð en hún ekki talið hana sambærilega hinni leigðu eign þar sem hún hafi ekki verið á jarðhæð. Hún hafi reynt að ná samkomulagi við leigusalann sem hafi greitt henni 2,4 milljónir þó krafa hennar hljóðaði upp á fjárhæð sem væri um 1,1 milljón hærri.
Fram kemur að konan hafi á endanum flutt úr íbúðinni og tæmt hana í upphafi árs 2026.
Til móts
Í andsvörum leigusalans kom fram að komið hafi verið til móts við konuna með bæði endurgreiðslu og niðurfellingu á leigu, umfram skyldu. Þetta hafi verið gert þrátt fyrir að konan hafi hafnað flutningi yfir í aðra íbúð. Þar að auki hafi leigusalinn greitt kostnað vegna geymslu á búslóð konunnar og fyrir mælingar á íbúðinni sem hún hafi látið framkvæma.
Sú krafa konunnar sem stæði eftir, endurgreiðsla á um 1,1 milljón króna, sneri að leigu fyrir tímabilið febrúar til ágúst 2025. Sú krafa stæðist ekki enda hefði búið konan búið á þessum tíma í íbúðinni, ekki viljað flytja í aðra íbúð og mælingar hefðu ekki staðfest að íbúðin hefði verið óíbúðarhæf.
Í niðurstöðu kærunefndar húsamála segir að konan hafi byggt kröfu sína á ákvæði húsaleigulaga þar sem segi að leigjandi eigi kröfu til hlutfallslegrar lækkunar á leigu á meðan ekki hafi verið bætt úr annmörkum á hinu leigða. Það sé þó ekki hægt að líta fram hjá því að engin gögn styðji að íbúðin hafi verið óíbúðarhæf að öllu leyti eða nokkru. Það sé ekki mögulegt að ákvarða konunni afslátt á leigunni á grundvelli eigin lýsinga hennar á slæmum loftgæðum, enda sé lýsing hennar þvert á mælingar og gögn frá heilbrigðiseftirliti sem liggi fyrir í málinu. Þau gögn staðfesti ekki að íbúðin hafi verið óíbúðarhæf eða loftgæði í henni sérstaklega slæm.
Er kröfu konunnar um endurgreiðslu á um 1,1 milljón króna í leigu, til við viðbótar við þær rúmu 2,4 milljónir sem leigusalinn hafði þegar greitt henni, því hafnað.