Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að taka þurfi niðurstöðum könnunar um skoðanir karlmanna á Íslandi með fyrirvara þar sem úrtakið hafi verið skekkt. Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í félagsfræði við sama skóla, segir skýrsluna með könnuninni ekki standa undir ályktunum um að íslenskir karlmenn séu með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum.
Niðurstöður sem benda til íhaldssamari skoðana en á hinum Norðurlöndunum
Skýrslan var unnin af alþjóðlegu hugveitunni Equimundo – miðstöð karlmennsku og félagslegs réttlætis, að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar. Fjallað var um niðurstöður skýrslunnar á bæði Vísi og RÚV en þar segir að 55% ungra manna telji að karlmenn eigi að vera fyrirvinnur heimilisins. 42% telja að karlar eigi að eiga lokaorðið í nánum samböndum. 51% telur karlmenn vera betri stjórnendur í fyrirtækjum en konur.
Þá segir einnig að karlmenn séu með almennt með íhaldssamari skoðanir um karlmennsku en karlmenn í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Þar á meðal telji íslenskir karlmenn í mun meiri mæli að það að leysa átök með ofbeldi sé hluti af karlmennsku, sem og að karlmenn eigi fremur en konur að afla tekna til að framfleyta fjölskyldum sínum. Skal það tekið fram að fjölmiðlar settu fyrirvara um niðurstöðurnar bæði með tilliti til úrtaks og mismunandi skilning fólks á spurningunum.
Útlit fyrir skekktar niðurstöður
Eva segir í samtali við RÚV að útlit sé fyrir að úrtak skýrslunnar sé skekkt og vísbendingar séu um að úrtakið hafi ekki verið tilviljunarúrtak.
„Það er í sjálfu sér mjög slæmt mál þegar verið er að birta svona niðurstöður þar sem vinnubrögðin virðast ekki nógu vönduð, sérstaklega ef það á að nota niðurstöðurnar til að álykta um til dæmis alla karla og konur á Íslandi sem eru á þessum aldri,“ sagði Eva.
Veðjar að ofbeldi sé ekki standard viðbrögð íslenskra karlmanna
Kolbeinn er mun harðorðari í sinni greiningu sem hann birtir á síðu sinni en notar hann orðið „rusl“. Segir hann að skýrslan standi ekki undir ályktununum sem dregnar voru af henni. Tekur hann sérstaklega fyrir spurninguna um hvort leysa eigi úr ágreiningi með ofbeldi.
„En jújú, það er áhugavert að íslenskir karlar og konur séu þetta mikið líklegri til að líta á það sem hluta karlmennsku að takast á við ágreining með ofbeldi. En hvað þýðir það? Margir af vinum mínum hafa verið að súpa hveljur á samfélagsmiðlum yfir þessari niðurstöðu. Ég ímynda mér að fólk túlki hana sem “65% íslenskra kalla telja ofbeldi bestu leiðina til að leysa ágreining” eða “… einu leiðina til að leysa ágreining” eða “… eftirlætis leiðina til að leysa ágreining”. Það er samt ekki það sem var spurt um,“ segir Kolbeinn. Heldur hafi fólk átt að taka afstöðu til fullyrðinga, um hvort karlmennska felst í að leysa ágreining með samræðum og ofbeldi. „Gögnin gera okkur ekki kleift að skera úr um hvort yrði fyrir valinu hjá þeim sem völdu bæði en í ljósi þess að það er ekki vargöld á skerinu þá er ég til í að veðja á að ofbeldi er ekki standard viðbrögð við ágreiningi.“
Ómyrkur í máli
Kolbeinn tekur það þó fram að hann treysti ekki gögnunum. „Mér finnst gögnin almennt ekki impónerandi og þau eru vandræðalega léleg fyrir Ísland,“ segir hann. Ísland hafi náð að skrapa saman 547 svörum. „Á milli þess að gagnaöflunin var illa hugsuð og þess að hún klúðraðist á Íslandi og að gögnin virðast ekki hafa verið vegin þá finnst mér allar ástæður til að efast um að gögnin gefi rétta mynd af Íslandi. Það eru einfaldlega of miklar líkur á því að gögnin séu svo skekkt að þau séu ónýtileg.
Þá skekki hugmyndafræðilegt sjónarhorn hugveitunnar sem gerir skýrsluna niðurstöðurnar, Kolbeinn er ómyrkur í máli í lok greiningarinnar:
„Ég get svo sem tekið undir það að skýrsla Equimundo sem viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag, bara ekki á þann hátt sem fólk virðist halda. Það sem skýrslan afhjúpar er hvað það er auðvelt að fanga athygli fjölmiðla með rusli, að minnsta kosti ef það virðist staðfesta rétta pólitíska orðræðu,“ segir hann.
„Sjokkið sem fór um samfélagsmiðla, eða a.m.k. ákveðna kima þeirra sem ég hef allt of mikla innsýn í, sýnir líka að fólk er ekki mikið í því að meta upplýsingar á gagnrýninn hátt. Þetta er vandamál, af því það eru sárafáar hræður sem lesa gagnrýni eins og þessa. Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum og illa unninni umfjöllun og bilið á milli raunveruleikans og hugmynda fólks breikkar sem því nemur, eina illa unna frétt í einu.“