Fréttir

Christa Pike er vöknuð

Mynd
Hin dauðadæmda Christa Pike er komin til meðvitundar.

Christa Pike, dauðadæmdur fangi í Tennessee fylki sem mistókst að taka af lífi í síðustu viku, er komin til meðvitundar. Að sögn lögmanna hennar getur hún talað.

Sjónvarpsstöðin NBC greinir frá þessu.

Eins og flestir vita mistókst að taka hinn dæmda morðingja Christu Pike af lífi í fangelsi í Nashville í Tennessee í lok september. Lifði hún af tvær sprautur af pentóbarítal eitri en missti meðvitund og var flutt á spítala.

Ekki var vitað hvort hún myndi nokkurn tímann vakna úr dáinu en nú er hún vöknuð að sögn lögmanna hennar. Ekki nóg með það þá getur hún talað.

„Við búumst við löngu bataferli,“ segja lögmennirnir Randy Spivey og Kelly Gleason. „Við erum óendanlega þakklát viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólkinu á sjúkrahúsinu, sem kom fram við Christu af virðingu og veitti henni framúrskarandi umönnun. Við viljum einnig þakka þúsundum manna víðs vegar að úr heiminum sem sendu skilaboð og lýstu yfir stuðningi og fyrirbænum fyrir Christu.“

Munu þeir greina frekar frá stöðunni á blaðamannafundi á miðvikudag.