Lögreglan á Suðurnesjum hvetur til þess að bætt verði inn í frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd ákvæðum um bann við internetnotkun barna við tilteknar alvarlegar aðstæður. Vísar embættið þar til mála sem varða alvarleg brot barna gegn öðrum börnum í gegnum netið og sömuleiðis til brota fullorðinna gegn börnum. Nefnir embættið sérstaklega hinn alþjóðlega 764-netníðingahóp sem snýst um alvarlegt ofbeldi gegn börnum og ungmennum í gegnum netið.
Frumvarp Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra til nýrra heildarlaga um barnavernd er nú til meðferðar í velferðarnefnd Alþingis. Frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga.
Nokkuð hefur verið fjallað um 764-hópinn í fjölmiðlum víða um heim. Hann var upprunalega stofnaður árið 2021 af bandaríska unglingspiltinum Bradley Cadenhead. Hann afplánar nú 80 ára fangelsisdóm. Nafnið „764“ er dregið af póstnúmerinu í heimabæ hans Stephenville í Texas. Gengur hópurinn út á að þvinga börn og ungmenni, í gegnum netið, til að skaða sig sjálf eða annað fólk og jafnvel dýr. Oft hefur verið um mjög gróft ofbeldi að ræða.
Árið 2024 greindi DV frá því að íslensk unglingsstúlka lenti í klónum á 764-hópnum.
Sjá einnig: Íslensk stúlka í klóm erlendra netníðinga – Myndbönd af henni alblóðugri til sýnis á spjallrás
Önnur börn
Hópar sem stunda þetta athæfi eru raunar fleiri en eingöngu 764 og í mörgum tilfellum hafa netníðingarnir sjáfir verið undir lögaldri en hinir brotlegu hafa þó einnig verið fullorðnir.
Í umsögn Lögreglunnar á Suðurnesjum um áðurnefnt frumvarp til heildarlaga um barnavernd segir að embættið telji að bæta eigi við frumvarpið úrræði um takmörkun eða algert bann við notkun barna á interneti og öðrum samskiptamiðlum, við tilteknar alvarlegar aðstæður.
Segir ennfremur að undanfarin misseri hafi embættið ítrekað fengist við afar umfangsmikil afbrot sem bæði séu framin af börnum gegn börnum eða gegn börnum af fullorðnum í gegnum internetið. Sé þar m.a. vísað til svokallaðs 764 netbrotahóps og annarra slíkra, en víða í heiminum hafi slík brot verið felld undir hryðjuverk.
Sé um að ræða áður óþekkta vá gegn börnum, bæði líkamlega, kynferðislega og andlega. Segir embættið að vegna reynslu starfsmanna þess af rannsóknum slíkra mála telji það nauðsynlegt að barnavernd og/eða barnaverndaryfirvöld geti kveðið á um takmarkanir og/eða algert bann við netnotkun einstakra barna, sem grunur leiki á að séu gerendur í alvarlegum netafbrotum eða þolendur þeirra. Reyni sérstaklega á slíka heimild þegar forráðamenn og forsjáraðilar séu ekki tilbúnir til samstarfs við barnavernd og lögreglu.
Lögreglan á Suðurnesjum er eini aðilinn, af þeim sem hafa skilað umsögn um frumvarpið, sem leggur þetta til. Í umsögn Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu er hins vegar ekkert minnst á slík mál eða bann við netnotkun barna við mjög alvarlegar aðstæður.