Fréttir

Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“

Mynd
Myndir/Aðsendar

Afreksíþróttakonan Hrund Scheving hélt í september til Grikklands til að keppa á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum. Hana óraði þó ekki fyrir því hversu súrrealísk ferðin átti að vera og hversu litlu munaði að þetta yrði hennar seinasta ferðalag.

Fengu skilaboð um að gistingin væri ekki lengur í boði

Hrund tók eiginmann sinn og móður með í ferðina en eftir heimsmeistarakeppnina ætluðu þau að taka sér nokkurra daga frí til að njóta. Þau ákváðu að heimsækja eyjuna Hýdra og veltu því mikið fyrir sér hvað þau ætluðu að dvelja þar lengi, hvort dagarnir yrðu tveir eða þrír. Loks ákváðu þau að gista þar þrjár nætur. Síðan ætluðu þau að gista í hinu sögufræga Plaka-hverfi í Aþenu, laugardaginn 26. september.

Mynd
Mynd/Aðsend

„Á föstudeginum þegar við vöknum fáum við skilaboð frá Booking.com um að gistingin okkar í Aþenu sé ekki lengur í boði, það var sem sagt búið að afbóka hana. Það kom bara fram að gististaðurinn væri ekki til staðar lengur. Við vorum nú ekkert að spá eitthvað mikið í þessu og reyndum að finna aðra gistingu sem var nú ekki auðvelt þar sem þetta var bara með eins dags fyrirvara.

Svo sjáum við að það varð sprenging í Aþenu. Við vorum kannski ekki mikið að spá í því fyrst en svo fórum við eitthvað að skoða þetta betur og sjáum að þetta er í hverfinu sem við ætluðum að vera í. Það vakti meiri forvitni svo við fórum að skoða þetta enn betur og sáum að þetta var í götunni sem við áttum að vera í. Þegar við vorum komin aftur til Aþenu, þangað sem við áttum gistingu þarna á laugardeginum, þá sjáum við að þetta er nákvæmlega húsið sem við ætluðum að gista í.“

Sprengingin, sem hefur verið rakin til gasleka, var svo öflug að húsið er nú rústir einar og eins urðu nærliggjandi hús fyrir tjóni. Fjórir bandarískir ferðamenn létu lífið ásamt eldri hjónum sem bjuggu á efstu hæð hússins. Haris Doukas, borgarstjóri Aþenu, sagði að um gífurlegan harmleik væri að ræða. Bandarísku ferðamennirnir gistu í íbúðinni sem Hrund hafði bókað fyrir sig og ferðafélagana.

Mynd

„Þannig að daginn eftir sprenginguna áttum við að vera á þessu gistiheimili. Þetta var sem sagt íbúð með tveimur svefnherbergjum þannig að ég og maðurinn minn ætluðum að vera í öðru og mamma í hinu. Og þetta er bara húsið og þetta er bara fólkið sem dó, fólkið sem var í alveg sama húsi og við áttum að vera í. Þetta var bara sama íbúðin.“

Samspil örlaganna 

Hvernig er tilfinningin að uppgötva hversu litlu munaði?

„Hún er eiginlega óþægilegri en ég bjóst við því við eigum fjögur börn hérna heima og mamma var með mér og móðir mannsins míns er látin þannig að það yrði ekki mikið bakland eftir fyrir börnin, þó að ég eigi náttúrulega systur og yndislega fjölskyldu þá er þetta eitthvað svo súrrealískt. Þetta var einum degi frá því að vera við.“

Eins og áður segir þá mátti litlu muna því hefði Hrund aðeins dvalið í tvo daga á Hýdru þá hefði hún mögulega verið í íbúðinni þegar sprengingin átti sér stað.

„Samspil örlaganna gerði það að verkum að við vorum ekki þarna þennan dag. Við náttúrulega lítum á þetta sem svo að þarna hafi einhver æðri máttur verið á okkar snærum, sko.“

Grikklandsferðin var því sérstök, ekki bara út af sprengingunni. Þegar tveir dagar voru liðnir af ferðinni bárust tíðindi frá Íslandi. Fjölskylduhundurinn varð fyrir bíl og lifði það ekki af. Þannig hófst ferðin með mikilli sorg. Síðan keppti Hrund á heimsmeistaramótinu, gekk þar mjög vel og hafnaði í öðru sæti. Síðan átti sprengingin sér stað.

Mynd

„Þannig þetta er svona ferð sem maður á nú aldrei eftir að gleyma“

Gott var því að komast heim til að faðma börnin. Hrund ákvað að segja þeim ekki frá sprengingunni fyrr en þau voru komin heim, enda erfitt að lýsa því hversu litlu í raun munaði.

„En það er gott að vera komin heim. Eins og ég segi, lífið er óútreiknanlegt. Maður verður bara að njóta þess á meðan maður er hérna og hefur allt sitt besta fólk.“

Blaðamaður þakkar Hrund fyrir að deila frásögn sinni og segist vona að októbermánuður verði rólegri hjá fjölskyldunni. Hrund tekur undir en bendir á að það sé nú sjaldnast lognmolla í kringum þau, þeim þyki gaman að hafa gaman, en fjörið fram undan verði vonandi annars eðlis en þessi súrrealíska Grikklandsferð.