Fréttir

Leita að karlmönnunum sem tala um stóra málið – „Mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi“

Mynd
Diljá Ámundadóttir Zoëga og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir. Samsett mynd/Getty

„Það eru vissulega ekki allir karlmenn sem nauðga, en það eru alltof margir, og ennþá fleiri sem gera ekkert til að stöðva það. Þar liggur hundurinn grafinn,“ segir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir um nauðgunarmálið hræðilega í Cornell háskóla í Bandaríkjunum. 

Líkt og DV hefur fjallað um er töluverð reiði Vestanhafs vegna takmarkaðra afleiðinga fyrir sjö karlkyns nema í einum virtasta háskóla landsins sem sakaðir hafa verið um hópnauðgun gegn skólasystur sinni. Ungu konunni var, að hennar sögn, byrlað með miklu magni ketamíns og henni síðan nauðgað af þessum sjö, sem voru í hópi félaga í bræðrafélaginu. Segir hún að einn sjömenningana, sem stefnan beinist að, hafi sent skilaboð í hóp sem telur 57 karlmenn hvatt fleiri til að koma og brjóta henni. Málið er umdeilt en lögmaður einn sjömenninganna hefur sagt hana á höttunum eftir peningum. 

Sjá einnig: Mikil reiði vegna lítilla afleiðinga fyrir meinta gerendur í afar grófu kynferðisbrotamáli

Sjá einnig: Nýjar upplýsingar í hópnauðgunarmálinu óhuggulega þykja renna stoðum undir málflutning brotaþola

Afhjúpandi hversu fáir karlmenn stíga inn í

Ugla segir í færslu á Facebook að það sé afhjúpandi enginn þessara 57 karlmanna hafi tilkynnt málið til lögreglu eða mótmælt því sem var í gangi. 

„Málið er mjög afhjúpandi fyrir hversu stórt vandamál kynferðisofbeldi er, og hversu fáir karlmenn stíga inn í þegar á hólminn er komið - og taka beinlínis þátt í ofbeldi í stað þess að stöðva það,“ segir Ugla. 

„Kommentakerfin eru vitaskuld uppfull af karlmönnum sem upplifa þetta mál sem einhverskonar árás gegn þeim og karlmönnum yfir höfuð, og það sé verið að tala þá niður. Mér er umhugsað um rannsóknina sem sýndi að karlmenn óttast mest að konur hlæji að þeim, á meðan konur óttast mest að karlmenn drepi þær í því samhengi.

Það að karlmenn upplifi ákall til sín að draga aðra karla til ábyrgðar og vera ekki einn af þessum 50 sem gerðu ekkert sem einhverskonar árás er mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi.“

Allt konur sem tjá sig um málið

Diljá Ámundadóttir Zoëga, varaþingmaður Viðreisnar og guðfræðinemi, vekur einnig athygli á þessu í grein á Vísi. Hennar samfélagsmiðlar eru fullir af fréttum um málið í Cornell en það séu allt konur sem tjái sig um málið. 

„Um helgina birtu tvær ungar þingkonur ríkisstjórnarinnar sterk myndbönd um Cornell 7 málið. Þær hafa báðar látið sig ofbeldismál varða í gegnum tíðina en ég bara get ekki hætt að hugsa um afhverju enginn þingkarl hafi tekið þátt í umræðunni síðustu daga? Eða aðrir karlar sem starfa við það að taka stefnumótandi ákvarðanir í íslensku samfélagi?,“ segir Diljá.

„Hvað gerir það að verkum að þessi mál eru alltaf í fangi okkar kvenna? Við hvað eru karlar hræddir í þessu samhengi? Finnst þeim bandaríska málið um nauðgarana sjö í háskólabandalaginu ekki tengjast sér?“

Hún hafi flett upp körlum á samfélagsmiðlum sem tjái sig reglulega um málefni samfélagsins en enginn þeirra hafi tjáð sig um þetta mál eða önnur sem við koma ofbeldi karlmanna. 

„Ég veit að það beita ekki allir menn ofbeldi. En afhverju taka þá ekki fleiri karlar þátt í umræðunni um þetta sára samfélagsmein? Ef þeir geta rætt um Bókun 35 eða bílastæðin endurheimtu 15, hvað gerir það að verkum að þeir forðast að ræða Cornell 7?“

Ummæli um ábyrgð kvenna sjálfsmark

Töluverð umræða hefur skapast um málið á vegg Uglu en þar sagði Ingimundur nokkur að hann setti spurningamerki við ábyrgð konunnar og að mögulega þyrftu konur að koma sér upp einhverskonar fylgdarkerfi. Var það rækilega blásið út af borðinu meðal þeirra sem telja nauðgun einungis á ábyrgð geranda, þá sé það fullkomið sjálfsmark að halda því fram að karlar séu ekki vandamálið en á sama tíma þurfi konur að passa sig. 

„Þetta er ekki svaravert,“ segir Ugla. „Sá sem beitir aðra manneskju ofbeldi ber alltaf ábyrgð á því, enginn annar.“