Fréttir

Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi

Mynd

Íslenskur karlmaður sem grunaður er um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. RÚV greinir frá þessu.

Maðurinn, sem er sagður athafnamaður á sextugsaldri, var handtekinn þegar hann kom til landsins frá Lissabon í Portúgal á níunda tímanum í gærkvöldi.

Í frétt RÚV kemur fram að maðurinn sé eigandi eins þeirra fyrirtækja sem rannsóknin beinist að. Til hafi staðið að handtaka hann í aðgerðum þann 22. september síðastliðinn en þá hafi komið í ljós að maðurinn væri í Portúgal.

Umræddur maður mun hafa staðið í ýmsum rekstri hér á landi og erlendis á undanförnum áratugum, þar á meðal veitingarekstri og rekstri fasteigna- og verktakafyrirtækja.