Fréttir

Höfðar mál til viðurkenningar á faðerni sonar síns

Mynd
Mynd: DV/Maggi gnúsari

Kona sem býr í Hafnarfirði hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness á hendur manni sem talinn er búsettur í Úkraínu til viðurkenningar á faðerni sonar síns.

Drengurinn er fæddur árið 2019 en samkvæmt stefnu málsins, sem birt er í Lögbirtingablaðinu, var fólkið í sambandi á getnaðartíma drengsins. Höfðu þau verið í sambandi í nokkurn tíma þegar hún varð ófrísk af drengnum. Móðirin fór af heimilinu þegar hún var komin á þriðja mánuð meðgöngu vegna meints heimilisofbeldis af hálfu mannsins. Kveðst hún hafa veriið undir álagi alla meðgönguna og óttast að maðurinn myndi gera henni mein. 

Barnið er ófeðrað þar sem móðir þess var hvorki í hjúskap né skráðri sambúð við fæðingu þess. Af þeim sökum var faðir hennar skráður sem faðir barnsins í samræmi við úkraínsk lög. Eftir sambandsslitin hafa ekki verið nein samskipti á milli meints föður og móður drengsins. Síðast var vitað um dvalarstað mannsins í leiguíbúð í Kiev í Úkraínu árið 2918, er konan sleit sambúðinni og fór af heimili þeirra. 

Málið er höfðað á grundvelli barnalaga en samkvæmt 1. grein þeirra á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína. Sá grundvallarréttur er einnig varinn í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. „Réttur til vitneskju um föður barns er jafnframt forsenda þess að barn geti notið annarra réttinda sem því ber, s.s. framfærslu og réttinum til að viðhalda fjölskyldutengslum. Tilgangur málsins er að tryggja þessi réttindi stefnanda. Samkvæmt 3. gr. barnalaga nr. 76/2003 getur barn m.a. verið feðrað með dómsúrlausn ef feðrunarreglur 2. gr. laganna eiga ekki við,“ segir í stefnunni. Ennfremur segir að erfiðar aðstæður í aðdraganda sambandsslita fólksins skýri hvers vegna ekki hafi verið unnt að ganga eftir faðernisviðurkenningu fyrr. 

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 25. nóvember.