Fréttir

Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu

Mynd

Einelti meðal yngri grunnskólanemenda hefur aukist ár frá ári undanfarin ár. Nú segjast 22 prósent nemenda í 4. og 5. bekk hafa orðið fyrir einelti, samanborið við 18 prósent árið 2023.

Þetta kemur fram í nýjum niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ), sem lögð var fyrir nemendur í 4.–10. bekk í grunnskólum landsins í vor. Alls tók 23.881 nemandi úr 153 grunnskólum þátt í rannsókninni.

Eineltið sker sig úr

Heildarmynd rannsóknarinnar er að mörgu leyti jákvæð. Fleiri nemendum líður vel í skólanum, lífsánægja hefur aukist og færri upplifa tíða andlega vanlíðan.

Einelti sker sig hins vegar úr og er sá þáttur sem hefur þróast hvað óhagstæðast. Hlutfall nemenda í 4. og 5. bekk sem segjast hafa orðið fyrir einelti hefur hækkað á hverju ári frá 2023 og farið úr 18 prósentum í 22 prósent.

Sambærileg merki sjást meðal nemenda í 6. og 7. bekk og vísbendingar eru um svipaða þróun á unglingastigi.

Á sama tíma hefur dregið úr ýmsum öðrum tegundum ofbeldis. Meðal nemenda í 8.–10. bekk hefur til að mynda dregið úr heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og áreiti, slagsmálum og líkamsárásum. Þá upplifa flestir nemendur mikið öryggi heima og í nærumhverfi sínu.

Helmingur stúlkna finnur reglulega fyrir vanlíðan

Andleg líðan barna þróast almennt í jákvæða átt. Árið 2026 mátu 62 prósent nemenda í 6.–10. bekk líf sitt gott, samanborið við 57 prósent árið 2023. Hlutfall þeirra sem upplifa tíða andlega vanlíðan hefur jafnframt lækkað úr 37 prósentum í 32 prósent.

Kynjamunurinn er þó áfram mikill þar sem stúlkur meta bæði lífsánægju og andlega líðan sína verri en drengir.

Helmingur stúlkna í 10. bekk segist finna fyrir að minnsta kosti tveimur einkennum andlegrar vanlíðanar, svo sem kvíða, depurð, pirringi eða svefnerfiðleikum, oftar en einu sinni í viku.

Sjálfsskaði meðal nemenda í 10. bekk virðist vera á hægri niðurleið í heild en mælist þó enn um 15 prósent. Engin lækkun kemur fram meðal stúlkna.

Einmanaleiki eykst á ný

Rannsóknin sýnir einnig merki um aukinn einmanaleika meðal eldri nemenda. Alls segjast 11 prósent nemenda í 6.–10. bekk oft vera einmana.

Einmanaleiki hafði farið minnkandi frá árinu 2022 en sú þróun virðist hafa snúist við og frá árinu 2024 eru merki um aukinn einmanaleika hjá nemendum í 8.-10. bekk, einkum hjá stúlkum. Hlutfall þeirra sem upplifa einmanaleika hefur þar hækkað úr 14,7 prósentum í 17,1 prósent. Hjá drengjum hefur hlutfallið farið úr 7,3% í 8,2%.

Reykingar tvöfaldast á tveimur árum

Ekki sjást merki um almenna aukningu í vímuefnaneyslu. Þvert á móti hefur dregið úr áfengisneyslu, rafrettunotkun og notkun nikótínpúða undanfarin ár.

Þó vekur þróun sígarettureykinga og kannabisnotkunar meðal nemenda í 10. bekk athygli.

Hlutfall tíundubekkinga sem reykja sígarettur hefur tvöfaldast á tveimur árum, úr 2,3 prósentum árið 2024 í 4,6 prósent árið 2026. Hlutfall þeirra sem hafa prófað kannabis hefur á sama tíma aukist úr 5,7 prósentum í 6,5 prósent. Þessi þróun virðist einkum skýrast af aukinni notkun meðal drengja.

Áfengisneysla hefur hins vegar minnkað verulega frá 2022. Þá höfðu 13,4 prósent tíundubekkinga drukkið áfengi síðustu 30 daga en hlutfallið er nú 9,1 prósent.

Fleiri líður vel í skólanum

Þrátt fyrir þessa neikvæðu þætti sýnir rannsóknin að viðhorf barna til skólans hafa batnað. Hlutfall þeirra sem líður vel í kennslustundum hefur hækkað úr 86 prósentum árið 2024 í 89 prósent árið 2026 og nær sú þróun til allra árganga.

Þá hefur hlutfall nemenda sem eru oft þreytt í skólanum lækkað úr 36 prósentum árið 2023 í 30 prósent árið 2026 og færri segjast skrópa.

Fjölskyldustuðningur mælist einnig mikill. Níu af hverjum tíu nemendum í 6.–10. bekk telja sig njóta góðs stuðnings fjölskyldunnar.

„Heildarniðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 sýna að þróun fjölmargra mælikvarða um líðan nemenda, upplifun þeirra af skólanum, öryggi og áhættuhegðun barna er hagstæð. Niðurstöðurnar undirstrika þó að áskoranir eru áfram til staðar. Sérstaklega þarf að fylgjast með auknu einelti og einmanaleika og mikilli vanlíðan meðal hluta nemenda og þróun hennar. Sömuleiðis er mikilvægt að fylgjast áfram með vímuefnaneyslu meðal elstu nemenda grunnskóla. Þá er brýnt að minna á mikilvægi þess að foreldrar ræði við börn á unglingsaldri um áskoranir og líðan og veiti þeim stuðning,“ segir í frétt um niðurstöðurnar á vef Stjórnarráðsins.