Fréttir

Barnið vaknaði ekki við innbrotsþjófana í nótt – Minnir fólk á að læsa gluggum

Mynd
Anna Marsibil Clausen. Samsett mynd/Getty

Tveir innbrotsþjófar reyndu að komast inn í barnaherbergi í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Heimilisfaðirinn vaknaði við mennina tvo og bankaði hraustlega í gluggann, við það létu þeir sig hverfa, hafði hann svo samband við lögreglu sem kom á vettvang. Barnið, sem er fjögurra ára, vaknaði ekki við innbrotsþjófana. Anna Marsibil Clausen, móðir barnsins, vaknaði heldur ekki við innbrotstilraunina. 

Í dagbók lögreglu frá því í nótt segir:

„Óskað eftir aðstoð lögreglu þar sem aðili hringir frá heimili sínu og segir tvo menn hafa verið komnir með höfuðið inn í gegnum glugga hjá dóttur sinni, lögregla fór á vettvang.“

Ræddu hátt saman fyrir utan gluggann

Anna segir í samtali við DV að hún vilji vara aðra við. Mennirnir voru tveir og voru að gera sig líklega til að brjótast inn um gluggann inni í barnaherbergið. 

„Þeir fóru ekki hljóðlega að heldur ræddu nokkuð hátt um mögulegar aðferðir. Manninum mínum þykir ljóst að þetta hafi verið grey í fjarmögnunarhugleiðingum fyrir næsta skammt fremur en útsmognir glæpamenn,“ segir hún í færslu í hópnum Íbúar í Miðborg.

„Hvað sem því líður vildum við vara aðra við, gluggarnir okkar verða læstir á nóttunni eftirleiðis.“

Fleiri þjófnaðir og innbrot í ár en í fyrra

Innlegg Önnu hefur vakið mikla athygli. Bjartmar Leósson, best þekktur sem hjólahvíslarinn, sem hefur lagt mikið á sig við að endurheimta verðmæti fyrir fólk segir að fólk í virkri neyslu þurfi meira á að halda en húsaskjól og bætur. „Bæturnar eru oft búnar á fyrstu dögum mánaðarins og hvað tekur þá við? Akkúrat þetta, ránsferðir til að eiga fyrir næsta skammti,“ segir Bjartmar í athugasemd. 

Samkvæmt tölum lögreglunnar hefur verið brotist inn á, eða tilkynnt um þjófnað, af 219 heimilum á þessu ári fram til ágústmánaðar, er það töluverð aukning frá því í fyrra þegar brotist var inn á, eð tilkynnt um þjófnað á, 167 heimilum.

Teitur Atlason, sem lenti í innbroti fyrr í haust, segir að það skipti hann ekki máli hvers vegna verið var að brjótast inn til sín. „Við eigum öll okkar sögu og okkar sorgir. Þegar var brotist inn hjá mér var mér oft sagt að þetta væru "fíklar" eða "geðsjúklingar". Í raun er mér sama. Ég vil hvorki fíkla eða geðsjúklinga inn í húsinu mínu þegar ég er sofandi eða ekki heima,“ segir Teitur.

„Við verðum að breyta umræðunni og afstöðunni í þessum málum. Saga hins brotlega skiptir litlu máli. Ef hún skiptir máli, ætti fólk bara að hafa opna glugga og bjóða þjófunum inn svo að þeir geti náð í það sem þeim vantar.“