Kántrýstjarnan Zach Bryan ögraði milljarðamæringnum Robert Kraft með því að klæðast bol til stuðnings Palestínu á tónleikum á leikvangi í eigu hans. Kraft er dyggur stuðningsmaður Ísraels.
Dagblaðið Boston Herald greinir frá þessu.
Kántrýstjarnan Zach Bryan mætti í bol sem á stóð „Frjáls Palestína“ á tónleika í Gillette höllinni, nálægt Boston. Leikvangurinn, þar sem New England Patriots spila sína heimaleiki, er í eigu milljarðamæringsins Robert Kraft.
Eins og flestir muna var rapparanum Macklemore vísað af hljómleikaferðalagi Ed Sheeran vegna þrýstings frá Kraft. Macklemore hafði sýnt Palestínu stuðning en Kraft er mikill stuðningsmaður Ísraels. Myndi Sheeran ekki fá að spila í tónleikahöll hans ef Macklemore væri þar að hita upp.
Sjá einnig:
Roger Waters hellir sér yfir Ed Sheeran - „Það er til tvenns konar fólk í þessum heimi...“
Fjölmargir tónlistarmenn hafa sýnt Macklemore stuðning, til að poppstjarnan Zara Larsson. Nú hefur Zach Bryan bæst í hópinn og óhætt er að segja að hans mótmæli hafi vakið athygli.
Það var ekki aðeins Bryan sjálfur sem mætti í bol til stuðnings Palestínu heldur öll hljómsveitin hans.
„Zach Bryan lét Kraft líta út eins og kjána,“ segir einn netverji á samfélagsmiðlum.
„Svona á að styðja Palestínu á sama leikvelli og reynt var að þagga niður í henni,“ segir annar.
Bryan er ein af stærstu stjörnum kántrý-tónlistar vestanhafs. Í gær seldust rúmlega 73.500 miðar sem er aðsóknarmet á Gillette leikvanginum.