Maður þá þrítugsaldri í Georgíu fylki í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir að plata bæði heilbirgðisstarfsfólk og starfsfólk veitingastaðar. Þóttist hann verða veikur til þess að sleppa við að borga fyrir matinn.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Abdul Hakeem Rasheed, 26 ára maður frá Georgíu fylki, var handtekinn þann 24. september síðastliðinn eftir að hafa hringt á neyðarlínuna á veitingastað. Er hann sakaður um að svíkja bæði heilbrigðisstarfsfólkið og starfsfólk veitingastaðarins.
Rasheed var að borða á humarstaðnum Red Lobster í bænum Douglasville. Eftir matinn gerði hann sér upp veikindi og hringdi á neyðarlínuna, 911. Sjúkrabíll kom en sjúkraflutningamennirnir sáu að hann var við hestaheilsu.
Í stað þess að fara með Rasheed á sjúkrahús var hringt á lögreglu og hann handtekinn. Er hann sakaður um að hafa ætlað að reyna að komast undan því að borga 63,77 dollara, eða um 8 þúsund krónur, fyrir humarinn.
Rasheed var færður í fangageyslu og trygging ákveðin 3 þúsund dollarar, eða 370 þúsund krónur. Er hann enn í steininum.