Fréttir

Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana

Mynd

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn konu um greiðsluþátttöku í lækniskostnaði erlendis, vegna fylgikvilla í kjölfar brjóstastækkunaraðgerðar. Fram kemur í úrskurðinum að Sjúkratryggingar hafi greitt fyrir að láta fjarlægja sílikonpúðana úr brjóstum konunnar þegar þeir fóru að leka. Hins vegar lak sílikon út í vefi og eitla og þörf var á sérstakri aðgerð vegna þess. Konan sagði í kæru sinni að sér hefði verið tjáð að hún yrði að leita eftir slíkri þjónustu erlendis en Sjúkratryggingar synjuðu greiðsluþátttöku á þeim grundvelli að stofnunin tæki ekki þátt í að greiða fyrir þessa þjónustu hér á landi.

Í kæru konunnar til úrskurðarnefndar velferðarmála kom fram samkvæmt læknisfræðilegum gögnum hafi sílikon dreifst í vefi og eitla. Slík meðferð væri ekki framkvæmd á Landspítalanum. Í samræmi við reglur EES teldi hún sig eiga rétt á nauðsynlegri meðferð. Vildi konan meina að læknisfræðileg gögn sýndu skýrt að um hafi verið að ræða nauðsynlega læknismeðferð.

Mótmælti konan þeirri röksemd Sjúkratrygginga að um viðbótaraðgerð væri að ræða. Þvert á móti hefði þetta verið nauðsynleg læknismeðferð vegna fylgikvilla eftir sílikonbrjóstaígræðsluna. Fyrir lægi samkvæmt læknisfræðilegum gögnum að sílikon hafi dreifst í vefi og eitla, sem staðfesti að um hafi verið að ræða raunverulegt heilsufarslegt vandamál.

Ekki á Lansanum

Benti konan á í kærunni að í læknisvottorðum kæmi skýrt fram að umrædd aðgerð, til að fjarlægja sílikon úr vefjum og eitlum, væri ekki framkvæmd á Landspítalanum. Þá hafi henni verið ráðlagt að leita sér meðferðar utan hins opinbera heilbrigðiskerfis þar sem viðeigandi meðferð hafi ekki verið aðgengileg innanlands. Af þessu leiddi að hún hafi hvorki haft raunhæfan möguleika á að fá samsvarandi meðferð á Íslandi né raunhæfa leið til að afla fyrir fram samþykkis fyrir aðgerðinni. Synjun Sjúkratrygginga Íslands byggði því á formlegum sjónarmiðum en tæki ekki nægilegt tillit til efnis málsins, þ.e. að um hafi verið að ræða nauðsynlega meðferð sem ekki hafi verið í boði hér á landi. 

Benti konan einnig á hluti eitlana hefðu verið fjarlægðir og því ljóst að aðgerðin hafi verið bráðnauðsynleg.

Með vísan til reglna EES væru skilyrði fyrir greiðsluþáttöku uppfyllt og því ætti nefndin með réttu að fella þessa synjun Sjúkratrygginga Íslands úr gildi.

Samsvarandi

Í andsvörum Sjúkratrygginga var vísað til ákvæða laga og reglugerða um að þeim sem væru sjúkratryggðir væri heimilt að sækja sér heilbrigðisþjónustu innan aðildarríkis EES, sem hægt væri að veita hér á landi en sótt yfir landamæri og njóta greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga, enda væri þjónustan samsvarandi þeirri þjónustu sem Sjúkratryggingar tækju þátt í að greiða hér á landi.

Þar sem þjónustan, sem konan sóttist eftir greiðsluþátttöku vegna, væri ekki greidd af Sjúkratryggingum á Íslandi hafi umsókn hennar verið hafnað.

Athygli vekur að fram kemur í andsvari Sjúkratrygginga að þegar hafi þurft að taka sílikonpúðana úr brjóstum konunnar vegna leka hafi stofnunin tekið þátt í að greiða fyrir þá aðgerð. Hins vegar væri ekki til staðar greiðsluþátttaka í aðgerð til að fjarlægja sílikon sem kynni að sitja eftir í líkamanum eftir að púðarnir hafi verið fjarlægðir.

Vísuðu Sjúkratryggingar einnig til þess að konan hafi verið lögð inn í eina nótt hjá þeim aðila sem framkvæmdi aðgerðina. Þegar meðferð krefjist innlagnar á sjúkrahús í að minnsta kosti eina nótt skuli sækja um fyrir fram samþykki fyrir endurgreiðslu eða þátttöku í kostnaði frá stofnuninni. Það hafi konan ekki gert en hefði hún gert það þá hefði verið mögulegt að upplýsa hana um að Sjúkratryggingar tækju ekki þátt í að greiða fyrir aðgerðir af þessu tagi.

Fyrir fram

Í niðurstöðu kærunefndar velferðarmála segir að samkvæmt reglugerð um heilbrigðisþjónustu sem sótt er innan aðildarríkis EES-samningsins skuli sjúkratryggður einstaklingur, áður en hann ákveði að sækja heilbrigðisþjónustu til annars aðildarríkis EES-samningsins, sækja fyrir fram um samþykki fyrir endurgreiðslu eða þátttöku í kostnaði frá Sjúkratryggingum Íslands þegar meðferð krefjist innlagnar á sjúkrahús í að minnsta kosti eina nótt eða óslitinnar meðferðar í meira en sólarhring.

Konan hafi legið inni á sjúkrahúsi í eina nótt og síðan sótt um endurgreiðslu þegar hún hefði þegar undirgengist meðferðina.

Þar sem hún hafi verið inniliggjandi í eina nótt og samt ekki sótt um greiðsluþátttöku áður en meðferðin fór fram þá uppfylli hún ekki skilyrði áðurnefndrar reglugerðar fyrir greiðsluþátttöku.

Nefndin staðfesti því synjun Sjúkratrygginga á umsókn konunnar en á öðrum forsendum þó.