Fréttir

Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar

Mynd
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út vegna slyssins. Mynd: Landhelgisgæslan.

Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu lentu alls fjórir bílar, með átta manns innanborðs, í árekstri. Að minnsta kosti hluti hópsins slasaðist alvarlega en tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út auk tveggja sjúkraflugvéla til að flytja þá sem slösuðust mest á sjúkrahús.

Fram kemur í nýju tilkynningunni að allir sem lentu í slysinu séu erlendir ríkisborgarar sem séu ýmist búsettir hér á landi eða ferðamenn.

Segir enn fremur að aðgerðum lögreglu á vettvangi sé lokið og ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu en rannsókn á tildrögum slyssins sé í höndum lögreglunnar á Austurlandi og rannsóknarnefndar samgönguslysa.