„Ég bara segi: Það skal enginn snerta verkfallsvopn verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, í þættinum Átakalínur. Í þættinum er farið yfir íslenska vinnumarkaðsmódelið en það er aftur til umræðu, nú síðast vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, komu þá upp raddir um að þörf sé nýju vinnumarkaðsmódeli sem feli meðal annars í sér að litlir hópar geti ekki stöðvað heilu atvinnugreinarnar.
„Það eru ríkir hagsmunir að veikja slagkraft verkalýðshreyfingarinnar og það eiga allir, allt launafólk á að sperra eyrun og hugsa: Já, hér er vilji til að draga úr samningsgetu launafólks. Verkfallsvopnið, það kostaði blóð, svita og tár að ná því. Það er alls ekki til staðar í öllum löndum þó að það séu ekki ríki sem við berum okkur saman við, þar sem að það er veikburða en það kemur ekki til greina að það verði veikt.“
Telur hún það óvarlegt að segja að íslenska vinnumarkaðsmódelið sé brotið.
„Ég er svolítið hissa á því tali og mér finnst það pínu óvarlegt, af því að þegar verið er að tala um að vilja nýtt vinnumarkaðsmódel. Þá er verið að tala um mjög afmarkaðan þátt í módelinu,“ segir hún. Verkalýðshreyfingin taki því illa þegar hún er ekki höfð með í ráðum varðandi ákveðna þætti eins og til dæmis þróun í húsnæðismálum, atvinnuleysistryggingum og fleiru.
„Þarna viljum við sitja við borðið því það er verið að tala um mjög stóra hagsmuni bæði fyrir launafólk og fyrirtækin í landinu. Þau sem eru að segja þetta, þau eru bara að tala um hreina launaliðinn, hvernig laun eru ákveðin í kjarasamningum. Það er auðvitað ekkert bara, launin skipta máli. Það hafa náttúrulega verið gerðar tilraunir hér til þess að hafa farið út í SALEK, að reyna að fara að fyrirmynd Norðurlandanna. Þar hafa iðnaðargreinarnar, útflutningsgreinarnar, sem eru í samkeppni utanlands, þar hefur verið gefið ákveðið merki varðandi launasetningu og svo hafa hinir fylgt á eftir.“
Í fullkomnum heimi væri hægt að segja að það sé skynsamleg leið til að búa til ákveðinn stöðugleika.
„Ef þú ætlar að koma á svona kerfi, þá þarf fólk að vera sammála um að þú sért með sanngjarna launasetningu. Af því hópar eru auðvitað oft að leita eftir leiðréttingu á launum sínum, telja sig hafa dregist aftur úr og eitthvað slíkt. Ef þú ætlar að gera þetta þá gerirðu það ekki með því að æpa í sjónvarpið, það gerir þetta enginn fyrir þig, þetta er samstarfsverkefni þar sem aðilar koma sér þá saman,“ segir Sigríður.
„Viljum við komast í þessa stöðu, ef við erum sammála um það að það sé jákvætt fyrir bæði launafólk og fyrirtækin að við séum með meiri festu þegar við förum í kjarasamninga. Þá þurfa allir að treysta því að það verði ekki einhverjir hópar skildir eftir og fái svo ekki leiðréttingu á sínu af því af því að það sé búið að festa þá inni í einhverju kerfi.“