fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fréttir

Lögreglan sá dularfullt par við Landakotskirkju – Svartri tösku kastað í runna

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. janúar 2026 15:30

Landakotskirkja Mynd: Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laugardaginn 20. apríl árið 2024 veittu lögreglumenn á eftirlitsferð karli og konu við Landakotskirkju athygli. Karlinn hélt á svartri tösku og á móti honum stóð kona. Þegar þau veittu lögreglu athygli kastaði maðurinn töskunni í runna við hliðina á þeim og gengu þau síðan í burtu.

Í töskunni reyndist vera nokkurt af fíkniefnum, m.a. hassi og MDMA. Var maðurinn ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í þessi efni í fórum sínum í sölu- og dreifingarskyni. Einnig fundust um 30 þúsund krónur í reiðufé, áætlaður afrakstur fíkniefnasölu.

Maðurinn neitaði sök en var sakfelldur, meðal annars á vitnisburði konunnar sem sagðist hafa ætlað að kaupa af honum fíkniefni en hafa hætt við það. Sagði hún að maðurinn tengdist hópi sem stundi fíkniefnasölu.

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 22. janúar og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi. Fíkniefnin voru gerð upptæk.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fréttir
Í gær

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda
Fréttir
Í gær

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu
Fréttir
Í gær

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi
Fréttir
Í gær

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari