fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Fréttir

Willum ætlar ekki í formannsframboð en hvetur aðra manneskju til þess

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 20:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að bjóða sig fram til formanns á næsta landsþingi flokksins. Hann hvetur hins vegar Lilju Dögg Alfreðsdóttur til að gefa kost á sér til formennsku.

Nafn Willums hefur töluvert oft verið nefnt í vangaveltum um arftaka Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns flokksins, sem gefur ekki kost á sér í embættið áfram.

Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, hefur þegar lýst yfir framboði í formannsembættið.

Willum fer yfir málið í Facebook-færslu, þar sem segir:

„Íþróttahreyfingin hefur í gegnum tíðina spilað stórt hlutverk í mínu lífi. Mér var sýndur sá heiður og traust, á síðasta ári, að vera kjörinn forseti ÍSÍ til næstu fjögurra ára.

Nú liggur það fyrir að Framsókn þarf að kjósa sér nýja forystu og hef ég fengið áskoranir um að bjóða mig fram til formennsku. Eftir töluverða umhugsun hef ég komist að þeirri niðurstöðu að einbeita mér að því að rísa undir því trausti sem ég hef verið kjörinn til og nú er því ekki rétti tímapunkturinn til þess að bjóða mig fram til forystu í Framsókn.

Ég vil þakka framsóknarfólki kærlega fyrir allar áskoranir sem ég hef fengið og mér þykir sérlega vænt um.

Framsókn þarf nú á sterkri forystu að halda. Ég hvet Lilju Dögg Alfreðsdóttur að gefa kost á sér til formennsku og leiða flokkinn inn í næsta Framsóknaráratug.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda