fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Fréttir

Vilja að Friðfinnur verði úrskurðaður látinn – Hvarf fyrir meira en þremur árum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 19:00

Friðfinnur Freyr Kristinsson. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir dómi liggur mál sem varðar hvarf Friðfinns Freys Kristinssonar, sem hvarf þann 10. nóvember árið 2022. Liggur undir krafa um að hann verði úrskurðaður látinn.

Friðfinnur var 42 ára gamall er hann hvarf. Hann hafði á yngri árum verið keppnismaður í sundi. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að hann hafði stungið sér til sunds frá Vogabyggð í Reykjavík og synt á haf út.

Þann 29. janúar næstkomandi verður fyrirtaka í máli við Héraðsdóm Reykjavíkur er varðar hvarf Friðfinns. Stefnandi er faðir hans, séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson.

„Sonur minn, Friðfinnur, hvarf fyrir þremur árum. Hann hefur ekki fundist og því þarf dóm/úrskurð til að úrskurða hann látinn. Þrjú ár þurfa að líða þar til hægt er að setja þennan punkt aftan við málið,“ segir Kristinn í samtali við DV. Telur hann að málið muni fara nánast sjálfkrafa í gegn enda yfir þrjú ár liðin frá hvarfi Friðfinns.

„Já, mér skilst að þetta sé nánast formsatriði.“

Í 5. grein laga um horfna menn segir að unnt sé að ákveða með dómi að horfinn maður skuli talinn látinn ef þrjú ár eru liðin frá því síðast spurðist til hans, að undangenginni opinberri stefnu.

Kristinn segir að þessi málalok séu æskileg: „Já, það einfaldar margt. En verst er að hann skuli ekki hafa fundist,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda