fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Fréttir

Ákærð í máli þar sem milljónir voru sviknar út úr konu frá Akureyri

Ritstjórn DV
Laugardaginn 17. janúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úkraínsk kona á fimmtugsaldri, sem búsett er hérlendis, hefur verið ákærð fyrir peningaþvætti með því að taka við þriggja milljón króna millifærslu inn á bankareikning sinn í Landsbankanum frá ónefndum aðila. Í ákærunni kemur fram að milljónirnar eru sagðar vera ávinningur af fjársvikum sem sami aðili framdi í gegnum Facebook í júlí árið 2024 og hafði áðurnefnda upphæð af akureyskri konu sem einnig er á fimmtugsaldri. Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 16. mars næstkomandi en ekki hefur tekist að birta ákærðu stefnuna og því er hún birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. Er þess krafist að sú úkraínska verði dæmdi til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg