fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

„Það væru endalok heimsins eins og við þekkjum hann“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 13:36

Donald Tusk. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, varar við því að innri átök innan NATO um Grænland gætu leitt til hörmunga fyrir hinn vestræna heim.

Tusk sagði á blaðamannafundi í dag að Pólverjar ætli ekki að senda hermenn til Grænlands líkt og nokkur Evrópuríki, þar á meðal Frakklandi og Þýskalandi, hafa þegar gert. Þá bætti hann við að árás eins NATO-ríkis á yfirráðasvæði annars myndi marka „endalok heimsins og við þekkjum hann“.

Reuters greinir frá þessu en eins og kunngt er hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti lagt á það ofuráherslu að Grænland verði undir stjórn Bandaríkjanna. Að öðrum kosti muni Kínverjar eða Rússar taka eyjuna og ná henni á sitt vald.

Trump virðist vera tilbúinn að leggja ýmislegt á sig til að þetta verði að veruleika og hefur sagt að það sé í raun aðeins tímaspursmál hvenær Grænland verður komið undir stjórn Bandaríkjanna.

„Tilraun eins NATO-ríkis til að ná yfirráðum yfir (hluta af) öðru NATO-ríki væri pólitísk hörmung,“ sagði Tusk á blaðamannafundi.

„Það væru endalok heimsins eins og við þekkjum hann — heims sem byggðist á samstöðu NATO og hélt aftur af illu öflunum sem tengdust kommúnískri ógn eða öðrum tegundum af fjandsamlegri framgöngu.”

Hann sagði jafnframt að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að tryggja að Evrópa héldi áfram að vera sameinuð í málefnum Grænlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði