fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

Hótanir Trumps gegn Íran virðast hafa borið árangur

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Íran hafa staðfest að mótmælandinn Erfan Soltani, sem handtekinn var í síðustu viku og dæmdur til dauða örfáum dögum síðar, verði ekki tekinn af lífi.

Þetta gerist í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði hernaðaraðgerðum gegn landinu ef stjórnvöld myndu hefja aftökur á mótmælendum.

Daily Mail greinir frá því að dómsmálaráðuneyti landsins hefði gefið út yfirlýsingu þess efnis að Soltani, sem er 26 ára, hefði verið ákærður fyrir „samráð gegn innra öryggi ríkisins og áróður gegn sitjandi stjórnvöldum“, en dauðarefsing ætti ekki við um slík brot væru þau staðfest fyrir dómi.

Trump sagði í gærkvöldi að hann hefði fengið áreiðanlegar upplýsingar þess efnis að mótmælendur yrðu ekki teknir af lífi.

Soltani, sem á fataverslun, var handtekinn þann 10. janúar síðastliðinn og komið fyrir í hinu alræmda Hesar-fangelsi í Karaj, en talið er að um 20 þúsund fangar afpláni þar dóma sína.

Fjölskylda hans fékk þau skilaboð að hann myndi sæta dauðarefsingu og var yfirvofandi aftaka áætluð í gær, þann 14. janúar. Hótanir Trumps um hernaðaraðgerðir virðast þó hafa borið tilætlaðan árangur.

Talið er að um 3.500 manns hafi látið lífið í mótmælunum í Íran á undanförnum dögum. Trump segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar þess efnis að ofbeldi gegn mótmælendum veðri hætt og hann muni fylgjast náið með framvindunni næstu daga.

„Við munum fylgjast með þessu og sjá hvernig ferlið verður,“ sagði Bandaríkjaforseti.

Á sama tíma sagði utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, við Fox News í gær að „engar hengingar yrðu í dag eða á morgun“. Hann sakaði yfirvöld í Ísrael um að standa á bak við ofbeldið í landinu síðustu daga, en færði þó ekki fram nein sönnunargögn hvað það varðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði