fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

Textar fundi í rauntíma á mörgum tungumálum

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 10:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

HP Elitebook X G2 fartölvan hlaut Nýsköpunarverðlaun tæknimessunnar CES 2026 í Las Vegas.

Um er að ræða fyrstu fyrirtækjavélina með örgjörva sem styður 85 TOPS, sem þýðir að hún er tilvalin fyrir verkefni sem krefjast mikilla útreikninga, eins og myndgreiningu, talgreiningu í rauntíma eða flóknar gagnagreiningar. Sem dæmi tekur það vélina einungis 3-6 sekúndur að keyra tungumálalíkan og búa til samantekt úr 20 blaðsíðna PDF-skjali. Það tekur vélina 30-45 sekúndur að taka upp 30 mínútna fund, texta hann, búa til samantekt og aðgerðapunkta. Hún getur líkað textað fundi í rauntíma á mörgum tungumálum.

„EliteBook X G2 vegur aðeins 1 kg, kemur með rafhlöðu sem endist allan vinnudaginn og nýjum gervigreindar eiginleikum sem veita hraðari útreikninga, lengri rafhlöðuendingu og betri orkunýtingu,“ segir Trausti Eiríksson, vörustjóri tæknifyrirtækisins OK. Hann segir að tölvan sé snjallari en fyrri kynslóðir, þar sem hún veit nákvæmlega hvenær hún þarf á afli að halda og hvenær ekki, sem hjálpar til við að spara orku.

Trausti segir að hönnun á lyklaborðinu sé ennfremur einstakt, en það er svokallað „Top-Mount“ lyklaborð, sem er fest að ofanverðu og því auðvelt að skipta út án þess að taka allan búnaðinn í sundur. „Hægt er að fjarlægja ýmsa íhluti án vandkvæða. Af þeim sökum verða viðgerðir miklu einfaldari og hraðari en ella. Slík hönnun sparar líka tíma og kostnað, og eykur líftíma búnaðarins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði