fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fréttir

Fiskikóngurinn lenti í óvenjulegu atviki í gær: „Rífur í öxlina á manni sínum og segist ekki versla hér“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. janúar 2026 08:08

Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Berg Ásgeirsson, sem oft er kenndur við verslun sína Fiskikónginn, segir frá óvenjulegu atviki sem hann lenti í í gær.

Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Kristján svo frá:

„Pirringur í skammdeginu! Hvert erum við komin eða í hvaða átt erum að fara? Ég var með opið í verslun minni í dag. Það kom eldra par inn í verslunina. Þau voru búin að vera í smátíma í versluninni og fá frábæra þjónustu frá einum starfsmanni mínum. Konan lítur þá til mín og segir: Hvaða pólitísku skilaboð er forstjórinn (ég) að bera út !! Rífur í öxlina á manni sínum og segist ekki versla hér og labbar út!! Ég átti reyndar ekki til orð til þess að svara þessum leikþætti.”

Svo virðist vera sem derhúfa sem Kristján var með á höfðinu hafi farið fyrir brjóstið á konunni, en á henni stendur: Make Ísland Great Again sem er vísun í frægt slagorð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, Make America Great Again.

Í færslu sinni segist Kristján sjálfur ekki gera upp á milli fólks og viðskiptavinir hans séu í ýmsum stjórnmálaflokkum og með allskonar skoðanir.

„Mér er slétt sama í hvaða stjórnmálaflokki fólki er og hvort það hafi yfir höfuð einhverjar stjórnmálaskoðanir. Derran sem ég var með í dag segir ekkert um neina flokka, nema þær vísa til kannski til Donalds Trumps, eða eru gerðar í sama anda og hann gerði, sem mér finnst flottar derrur.”

Sjálfur Kristján bara hlæja að þessu og hann biður fólk að anda með nefinu.

„Sem betur fer erum við ekki öll eins, en þá væri lífið hundleiðinlegt og litlaust. Ég ætla mér að vera með þessa derru út janúarmánuð og ögra sennilega mörgum. Ég segi nú bara gleðilegt ár, ……….skammdegið fer greinilega misvel í fólk.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fréttir
Í gær

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda
Fréttir
Í gær

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu
Fréttir
Í gær

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi
Fréttir
Í gær

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari